HM ungmenna í flokkum U12, U10 og U8 fer fram þessa dagana í Egyptalandi. Ísland á tvo keppendur á mótinu. Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10.
Birkir fékk frían vinning í fyrst umferðinni en varð að lúta í dúk í 2. umferð gegn eistneskum keppenda, Karl Samuel Leht (1118). Í 3. umferð á morgun fær Birkir georgískan strák, Nika Tsulaia (1242).
Alls eru 115 keppendur í U10 flokki Birkis. Birkir er númer 34 í stigaröðinni.
Í 2. umferð mætti Josef ítölskum strák, Giovanni Spiga (1365). Josef hafði betur í langri baráttuskák, raunar svo langri að Josef var síðastur að klára í salnum!

Í 3. umferðinni mætir 4. stigahæsta manni flokksins, Rúmenanum Henry Edvard Tudor (2255). Sá hefur verið yfir 2300 elóstigum og er bráðefnilegur. Hann skýrði sigurskák fyrir Chessbase India fyrir ekki alls löngu.
Greinilega mjög þroskaður skákmaður sem Josef er að fara að mæta. Josef fær góða hjálp og vonandi gengur baráttan vel!

Alls verða tefldar 11 umferðir í báðum flokkum en nú er enginn frídagur á mótinu sökum frestunar á fyrstu umferðinni.

HM fór brösulega á stað eins og áður hefur komið fram hér á Skak.is. Fyrstu umferð var frestað um einn dag, mótssalurinn var ekki staðfestur fyrr en daginn áður. Flutningar á milli staða hafa einnig gengið illa og ýmsir praktískir hlutir frá stærri hlutum og niður í borðaspjöld hefur verið ábótavant. Vonandi komast þessir hlutir betur í lag þegar líður á mótið!
Flokkur Jósefs á Chess-Results U12
Flokkur Birkis á Chess-results U10
















