Í dag kl. 13 hefst níunda og síðasta umferð Skákþings Reykjavíkur. Ljóst er að Dagur Ragnarsson og Gauti Páll Jónsson berjast um titilinn skákmeistari Reykjavíkur 2024!

Í lokaumferðinni fær Dagur hvítt gegn Birni Hólm Birkissyni en Gauti Páll svart gegn Jóhanni Ingvasyni.

Dagur og Gauti eru efstir með  sjö vinninga en Jóhann og Björn Hólm eru í 3.-4. sæti með 6 vinninga.

Fræðilegur möguleiki er á að fjórir verði efstir og jafnir! Hvorki Björn Hólm né Jóhann geta  hins vegar orðið Reykjavíkurmeistarar. Skilyrði til þess er að vera annað hvort með lögheimili í Reykjavík eða vera meðlimur í reykvísku skákfélagi. Hvorugur þeirra kumpána uppfyllir það.

Dagur stendur betur að því leyti að honum dugar til gera sömu úrslit og Gauti til að verða skákmeistari Reykjavíkur. Fyrstu oddastigin eru nefnilega fjöldi tefldra skáka og þar sem Gauti tók eina yfirsetu en Dagur enga dugar það Degi ávallt að enda jafn og Gautinn.

Ekki missa af lokaumferðinni! Tilvalið að mæta í Fenið og næla sér í vöfflur í Birnakiffu. Ritstjórn Skák.is mun ekki láta sig vanta þar!

Svo auðvitað allt í beinni fyrir þá sem ekki leggja í kuldagnn!

- Auglýsing -