Hér er farið yfir skákvikuna 29. janúar – 4. febrúar fréttir, slúður og annað, allt á léttu nótunum!

  • Viswanathan Anand er ekki bara góður í skák, hann virðist hafa þokkalegan tónlistarsmekk! Hér er myndband af Anand syngja sem er eitthvað sem enginn átti von á eða bað um!

  • Annar heimsmeistari, Vladimir Kramnik er við sama heygarðshornið. Hann tekur þátt á Titled Tuesday, streymir því á netinu, og sakar iðullega lakari skákmenn um svindl. Hann var viss um að andstæðingur sinni hefði svindlað…

Hér lék hvítur með unnið tafl 58.Kd8?? með yfir 20 sekúndur á klukkunni. Ástæðan var þó nokkuð einföld. Lela Javakhisvhili var með það sem kallað er „auto-queen“ stillt á. Það þýðir að þegar peð er vakið upp verður það sjálfkrafa að drottningu. Hún kunni ekki að breyta því og því fór sem fór…það eða Kramnik hafði rétt fyrir sér!

  • Torfi Leósson og Kristófer Orri Guðmundsson urðu jafnir og efstir á þriðjudagsmóti TR með 4,5 vinning í 5 skákum.
CAD-bræður í Pöbbkvissi á Reykjavik Open á dögunum

 

  • Ný alþjóðleg skákstig voru birt 1. febrúar. Hjörvar Steinn er áfram stigahæstur og eini íslenski skákmaðurinn yfir 2500 elóstigum. Gunnar Björnsson fer vel yfir listann og breytingar í frétt á Skak.is

 

 

  • Chess24 „dó“ formlega 31. janúar síðastliðinn. Ef slóðin chess24.com er slegin inn endar maður á chess.com. Ákveðinn sökunuður verður af síðunni, sérstaklega þegar kemur að útsendingum frá liðakeppnum á borð við Ólympíuskákmót. Eins sakna margir góðra lýsinga þeirra Svidler, Leko og Gustafsson.

 

 

  • Chessable Masters hófst í vikunni og stendur yfir fram í næstu viku. Magnus Carlsen, Nepo. Alireza og Wesley So ásamt fleirum.  Hikaru Nakamura lenti óvænt í 2. deild, þ.e. náði ekki að komast meðal átta efstu manna. Mótið er hluti af Champions Chess Tour og fyrsta mótið á þeirri mótaröð 2024.
Í eldlínunni Hans Niemann við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti. — Morgunblaðið/Ómar Óskarsson

Furðuleg vending varð í lok vikunnar þegar kemur að málefnum ungstirnisins umdeilda Hans Niemann. Skákklúbburinn í Saint Louis þar sem öllu stórmótin fara fram í Bandaríkjunum hefur tilkynnt að Niemann sé í banni vegna hegðunarvandamála og eignaspjalla. Sagan segir að hann hafi farið illa með hótelherbergi sem hann gisti á í kjölfarið á tapi á móti í St. Louis. Einnig á hann að hafa neitað að mæta í viðtal. Yfirlýsingin er hér fyrir neðan:

Niemann var fljótur að svara:

Í kjölfarið kom svo myndband frá Niemann þar sem hann skýrir frá sinni hlið. Myndbandið er yfir 20 mínútur! Hann gengst við því að hafa unnið þessi eignaspjöll en borgaði að sjálfsögðu skemmdirnar og margbaðst afsökunar.

Það er allavega ljóst að það er sjaldan lognmolla í kringum Hans Niemann! Hann hóf einnig í vikunni vlog-seríu sem hann kallar „Journey to World Chess Champion“ og er með dagleg myndbönd þar sem hann fer yfir þessa vegferð sína. Kemur kannski lítið á óvart að átrúnaðargoð hans er Bobby Fischer!

Dagur að tafli. Mynd: Facebook-síða mótsins.
  • Dagur Ragnarsson tryggði sér titilinn Skákmeistari Reykjavíkur með sigri á Skákþingi Reykjavíur sem lauk á sunnudeginum í vikulokin. Dagur endaði með 8 vinninga af 9 mögulegum sem er sérdeilis prýðilegur árangur. Lengst af var hann í baráttu við Gauta Pál Jónsson en Gauti varð að lúta í dúk í lokaumferðinni

Svindl og svindlásakanir í skákheiminum er komið út fyrir allan þjófabálk. Ian Nepomniachtchi tapaði á Chessable Masters fyrir Perúbúanum Jose Martinez sem teflir undir nafninu Jospem á Chess.com. Martinez hefur að jafnaði staðið sig vel á netinu og iðullega meðal efstu manna á Titled Tuesday. Hann er enginn aukvisi yfir borðinu, yfir 2600 skákstig og yfir 2700 hraðskákstig. Það hefur hinsvegar verið hvísl lengi um hvort hann „spili heiðarlega“ á netinu. Eins og vanalega með slíkt hvísl er það algjörlega óstaðfest og ósannað og mjög ósanngjarnt ef það á ekki rétt á sér.

Fyrir tveimur árum sakaði Gata Kamsky hann um svindl en það er svosem lítið að marka það því Kamsky sakar bókstaflega alla um svindl ef þeir halda út 30 leiki á mótinu honum. Frekar þreyttur vælukjói því miður.

Enn aftur að viðureign þeir Nepo og Martinez. Martinez vann fyrstu skákina í 4 skák einvígi með svörtu. Svartur varðist vel og kannski tefldi Nepo full glannalega á köflum…en vissulega vel teflt hjá svörtu.

Jafntefli varð svo í næstu tveimur en Martinez vann fjórðu skákina þar sem Nepo tefldi byrjunina glannalega enda varð hann að vinna skákina. Allt einvígið þegar þeir voru í mynd var Nepo með grettur og hló með sjálfum sér og augljóst hvað hann var að gefa í skyn. Eftir einvígið setti hann eftirfarandi færslu á X:

Aftur ekki bein ásökun en augljóst hvað Nepo er að gefa í skyn með „gat ekki gert neitt“ og broskall. Eftir einvígi hans daginn eftir við MVL kom svo eftirfarandi færsla:

Svona óbeinar áskanir eru orðnar ansi þreyttar og einhverra aðgerða er þörf!

  • Candidates.fide.com opnaði í vikunni. Kandídatamót karla og kvenna fara fram á sama tíma í Toronto í Kanada í byrjun apríl.

 

Hallgerður hefður staðið sig best Íslendingana og skilað 2,5 af 3 í hús í síðustu umferðum.
  • Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir tók þátt á hraðskákmóti í Sviss. Stóð hún sig með prýði, lagði FIDE meistara að velli og endaði með 7 vinninga af 13. Hún byrjaði mótið mjög vel og var komin með 6 vinninga úr 8 umferðum en varð eilítið bensínlaus í lokin. Hún hækkar á hraðskákstigum fyrir árangurinn.
Róbert Lagerman
  • Doninn sjálfur, Róbert Lagerman varð hlutskarpastur á Suðurlandsmótinu. Róbert hlaut 8 vinninga í 8 skákum og lagði Davíð Kjartansson að velli sem endaði í öðru sæti með 7 vinninga af 8. Þeir tveir voru einu titilhafarnir á mótinu og því sigurstranglegastir.

 

Markús Orri tefldi vel útfærða skák í dag
  • Markús Orri Óskarsson er í stuði á Skákþingi Akureyrar og hefur 5 vinninga eftir 5 umferðir, fullt hús!

  • Skráning gengur vel á Reykjavíkurskákmótið. Raðirnar eru orðnar þéttari af stórmeisturum og fjöldinn allur af skákáhrifavöldum virðist ætla að „streyma“ til landsins! Alls eru 320 skráðir til leiks og eru Íslendingar sem hyggja á þátttöku hvattir til að ganga frá því sem fyrst þar sem allar líkur eru á að loka þurfi fyrir skráningu vegna fjölda á einhverjum tímapunkti.

 

 

  • Gauti Páll laumaði inn seinni hlutanum af grein Jóns L. Árnasonar um 50 skáka maraþon hans í Tímavélinni
- Auglýsing -