Við gerum vikuna í skák upp á sunnudögum hér á Skak.is. Nú tökum við fyrir vikuna 12-18. febrúar. Ekki voru krýndir jafn margir Íslandmeistarar eins og í síðustu viku en þó voru Íslandmeistaratitlar í vikunni!
- Fámennt en góðmennt var á Skákkvöldi TG þar sem Björn Jónsson varð hlutskarpastur með 4,5 vinning úr umferðunum 5.

- 23 skákmenn mættu til leiks á Þriðjudagsmót TR þar sem Gauti Páll Jónsson varð hlutskarpastur með fullt hús.
- Duda og Alekseenko tóku Titled Tuesday mótin á Chess.com
- Öðlingamótið hófst síðastliðinn miðvikudag, teflt verður vikulega. Davíð Kjartansson er stigahæstur keppenda og fór fyrsta umferðin algjörlega eftir bókinni. Þorvarður Fannar Ólafsson er næststigahæstur keppenda og ef skák hans er skoðuð hratt virðist sigur Varða hafa verið nokkuð öruggur. Varði benti hinsvegar ritstjórn á skemmtilegt augnablik þar sem andstæðingur hans hefði getað bjargað sér!
- Eftir 43…Rb3+ varð framhaldið 44.Kd3 Rc1+ og hvítur gaf þar sem peðin falla eitt af öðru. Kristján hefði hinsvegar getað fórnað skiptamun með 44.Hxb3! Hxb3 og þar sem svarti kóngurinn kemst aldrei í gegn er staðan líklegast jafntefli. Hvíti kóngurinn labbar bara í kringum biskupinn á e2 og það er engin leið til að bæta stöðuna. Eina vinningstilraunin væri að koma svarta hróknum á e5 og leika …e6. Hvítur þarf hinsvegar ekki einu sinni að leyfa það og getur líklegast komið í veg fyrir að hrókurinn komist á e5. Magnus Carlsen trúir ekki á „fortressur“ en þessi virðist ansi þétt!

- Þeir Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson kíktu AFTUR í spjall til Kristjáns „Við Skákborðið“ í framhaldi af heimsókn þeirra í síðustu viku!

- Gárungarnir velta nú fyrir sér hvort Kristján Örn Elíasson eða „Kiddi vídeó“ eins og sumir kalla hann hafi sett Íslandsmet. Kiddi hefur nú teflt samfleytt í 14 daga á skákmótum! Ef það er mót í gangi þá er nánast pottþétt að Kiddi er mættur til leiks með veglega skeggið sitt og til að hafa „djöfulz gaman að þessu!“

- Kristján Örn var einmitt í banastuði á fimmtudags-hraðskákmóti TR. Kiddi endaði með 8,5 vinning og mokaði inn vinningum og skákstigum

- Stórskemmtileg hraðskákkeppni Taflfélaga fór fram í Hlöðunni í Gufunesbæ. Fjölnir sáu um skipulag mótsins og fá hrós fyrir það! Víkingaklúbburinn varði titil sinn eftir harða keppni og úrslitaeinvígi við Taflfélag Reykjavíkur um titilinn. Margir voru „heitir“ á mótinu. Hilmir Freyr tók 9,5 vinning af 10 á efsta borði, Bragi Þorfinnsson var á eldi hjá Víkingaklúbbnum endaði með 9 vinninga af 10, tapaði aðeins fyrir Ingvari Þór hjá TR sem var með 8,5 af 10. Jón Viktor var bestur á 3. borði með 8 af 10 en á fjórða borði var það Björn Hólm Birkisson með 9 vinninga af 10! Davíð Kjartansson var bestur á 5. borði með 8,5 af 10 og svo David Kolka á 6. borði með 9 vinninga af 10 mögulegum!
- TR og Víkingaklúbburinn enduðu með 9 sigra og 1 tap og tefldu úrslitaeinvígi um titilinn. Síðasta skákin til að klárast var viðureign Ingvars og Braga. Ingvar vissi ekki hvernig hinar skákirnar höfðu farið og kom upp fyndið augnablik þegar Ingvar knúði fram sigur og spurði hvernig hinar skákirnar hefðu farið, Gunnar Freyr tók upp myndbandið!
- Skráning á Reykjavíkurskákmótið hefur verið framar vonum. Lokað hefur verið fyrir skráningar erlendra keppenda enda er keppendalistinn kominn í 420 skákmenn og enn og aftur stefnir í met…líklegast væri auðvelt að fara yfir 500, jafnvel í 600 en plássleysi kemur í veg fyrir slík met!
- Eftir sjö umferðir er hlaupin mikil spenna í Skákþingi Vestmannaeyja þar sem þrír skákmenn hafa 5 vinninga að loknum 7 umferðum. Þetta eru þeir Guðgeir Jónsson, Benedikt Baldursson og Arnar Sigurmundsson.

- Magnus Carlsen vann sigur á Freestyle-chess mótinu í Þýskalandi. Magnus lenti í smá vandræðum í viðureign sinni við Firouzja þar sem hann þurfti að koma til baka eftir tap í fyrstu skákinni. Eftir það var „geitin“ í stuði! Skemmtileg grein um mótið
????@MagnusCarlsen is the winner of the first WEISSENHAUS Freestyle Chess G.O.A.T Challenge. ???? What do you love most about this format? #chessplayer #freestylechess #FreestyleChessGOAT2024 #ChessRevolution #WEISSENHAUS #bmw #maxnomic #frankrudolfhamburg #champagnelaurentperrier pic.twitter.com/Ug1DsVrGrg
— freestyle-chess (@chess_freestyle) February 16, 2024
- Freestyle (slembiskákmótið) í Þýskalandi gekk ansi vel og hugsuðurinn bakvið mótið og aðalstyrktaraðili vill styrkja fleiri mót og hafa 1 milljón dollara í verðlaun á hverju móti! Skoðið viðtalið við Jan Buettner að neðan!
- NM ungmenna lauk í dag, sunnudag, í Finnlandi. Enginn titill kom í hús að þessu sinni en tæpt stóð það í lokaumferðinni. Gunnar Erik Guðmundsson var í dauðafæri í B-flokki en hann hafði mjög vænlegt tafl gegn efsta manni mótsins og sigur hefði tryggt honum titilinn óskiptan. Sá finnski náði að verjast á ótrúlegan hátt og Gunnar sat eftir með sárt ennið í 4. sæti. Mikael Bjarki Heiðarsson var einnig í góðu færi. Hann var efstur fyrir lokaumferðina en tapaði erfiðu endatafli þar sem hann hefði getað bjargað jafntefli á ævintýralegan hátt sem hefði tryggt honum Norðurlandameistaratitil! Mikael endaði í öðru sæti sem var besti árangur okkar krakka. Aleksandr Domalcuk-Jonasson komst einnig á verðlaunapall, endaði í 3. sæti í A-flokki.
- Í lokin vill Vikan mæla með þessu viðtali við Levon Aronian. Þeir sem hafa áhuga á Chess960/Fischer Random/Slembiskák munu læra mikið um byrjanataflmennsku í þessum varíant með því að skoða þetta viðtal….þessi þjóðráð Aronian eiga líka vel við í venjulegri skák.
Bikarsyrpa III fór fram í Taflfélaginu um helgina. Bikarsyrpan er vettvangur fyrir unga skákmenn að fá reynslu og næla sér í sín fyrstu skákstig. 52 krakkar voru skráðir til leiks og á endanum var það Arnaldur Árni Pálsson (1267) sem varð hlutskarpastur með 6,5 vinning úr 7 umferðum, vel gert hjá honum!
















