Mynd frá útgáfu vorblðasins í fyrrra.

Á stjórnarfundi þann 22. febrúar ákvað stjórn Skáksambands Íslands að hætta útgáfu tímaritsins Skákar frá og með því blaði sem kemur út í febrúar-lok.

Eftirfarandi bókun var samþykkt á fundinum:

„Vegna ósjálfbærs reksturs og mikils taps á útgáfunni mun Skáksambandið hætta útgáfu tímaritsins Skákar frá og með því tímariti sem kemur út í febrúarlok 2024. Skáksambandið gerir ekki athugasemdir við ef fráfarandi ritstjóri og ritnefnd reyni að leysa rekstrarvanda blaðsins, gera reksturinn sem næst því sjálfbæran, með því að safna áskrifendum, styrktarlínum, auglýsingum og öðrum mögulegum tekjum. Ef það tekst er Skáksambandið opið fyrir því endurskoða ákvörðun sína komi þar erindi um til stjórnar SÍ.“ 

Stjórn Skáksambandsins telur rétt að árétta eftirfarandi:

  • Þau sem borguðu aðildargjöld sambandsins í des/jan í gegnum forritið Sportabler eiga rétt á að fá blaðið frítt enda bæði tímarit hvers árs verið innifalið fyrir þá sem greitt hafa aðildargjöld.
  • Síðustu vikurnar hefur Gauti Páll Jónsson fráfarandi ritstjóri safnað áskriftum í blaðið. Þau sem skráðu sig fyrir þeirri áskrift fá blaðið sem kemur nú út og greiða helming (3500kr í stað 7000kr) áskriftar sem svo lýkur þar sem útgáfu er hætt.

Stjórn Skáksambandsins þakkar fráfarandi ritstjóra, ritnefnd, prófarkalesurum og þeim sem skrifuðu launalaust í blaðið kærlega fyrir sitt framlag.

- Auglýsing -