Skólaskákmót Reykjavíkur fór fram þann 22. apríl síðastliðinn í Taflfélagi Reykjavíkur. Svæðismótið fyrir Reykjavík gefur þrjú sæti á hið fornfræga Landsmót í skólaskák. Teflt var í þremur flokkum, 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Klukkan 16:00 hófst yngsti flokkurinn og klukkan 18:30 tefldu eldri flokkarnir tveir samtímis. 

 

Yngsti flokkurinn, 1.-4. bekkur, hefur aldrei verið fjölmennari síðan mótið varð þrískipt. Alls mættu til leiks krakkar úr níu grunnskólum Reykjavíkur. Þar var Rimaskóli drjúgur í þátttökunni en líka skólarnir í Vesturbæ Reykjavíkur. Enduðu leikar þannig að þrír skákmenn röðuðu sér í efsta sæti með jafnmarga vinninga, 6 talsins af 7, tryggðu sér þannig sæti á Landsmótinu. Stigaútreikningur úrskurðaði um gull- silfur og brons. Þetta voru þeir Funi Jónsson, Melaskóla (gullverðlaun), Pétur Úlfar Ernisson, Langholtsskóla (silfurverðlaun) og Haukur Víðis Leósson, Hlíðaskóla (bronsverðlaun). Funi Jónsson er því Reykjavíkurmeistari í skólaskák 2024 í flokki 1.-4. bekkjar. Glæsilegur árangur hjá þessum strákum en þeir misstu vinninga aðeins niður gegn hvorum öðrum: Funi gegn Pétri, Pétur gegn Hauki og Haukur gegn Funa. Skammt undan var Hugi Vilmundur Arnarsson, Melaskóla, með 5.5 vinning og fengu fimm skákmenn 5 vinninga. 43 tóku þátt í mótinu, þar af 10 stúlkur. Það er því fjórðungshluti þátttakenda stúlkur í yngsta flokki en þetta hlutfall hríðlækkar svo með hækkandi aldri. Það er því verkefni fyrir skákhreyfinguna að hvetja stúlkurnar til dáða að halda áfram að tefla. 

 

1.-4. bekkur á chess-results

Pétur, Funi og Haukur. Mynd: Þorsteinn Magnússon.

Það mættu 22 til leiks í miðstigið, 5.-7. bekk. Krakkarnir komu úr 10 skólum borgarinnar og í þessum flokki komu flestir úr nágrenni Taflfélagsins, Breiðagerðisskóla. Í flokknum var skipting efstu manna aðeins öðruvísi en í yngsta flokknum en Jósef Omarsson, Landakotsskóla, vann mótið með fullu húsi, 7 vinninga af 7 mögulegum. Jósef er því Reykjavíkurmeistari í skólaskák 2024 í flokki 5.-7. bekkjar. Næstur varð Tristan Fannar Jónsson, Rimaskóla, með 6 vinninga. Tapaði hann bara gegn Jósef. Þriðji varð svo skólabróðir Jósefs, Jón Louie Thoroddsen með 5 vinninga, og tapaði hann bara fyrir silfur og gullverðlaunahöfunum. Næstir í röðinni með 4.5 vinning urðu Jakub Sokol, Austurbæjarskóla og Emil Finnsson Fenger, Melaskóla. 

5.-7. bekkur á chess-results

 

Jón Louie, Jósef og Trsitan Fannar. Mynd: Gauti Páll.

 

Mæting var heldur dræm í elsta flokk, 8.-10. bekk, að þessu sinni. Ákveðið var því að auka örlítið tímann á klukkunni og fá strákana til að tefla allir við alla, fimm umferðir. Í flokknum varð Markús Orri Jóhannsson, Háteigsskóla, efstur með 5 vinninga af 5 mögulegum. Arnaldur Árni Pálsson, Breiðholtsskóla, varð annar með 4 vinninga og 2 vinningar dugðu Ými Nóa Jóhannessyni, Réttarholtsskóla, fyrir þriðja sætið. Í þessum flokki var helmingur þátttakenda úr Réttarholtsskóla! 

8.-10. bekkur á chess-results

Ýmir Nói, Markús Orri og Arnaldur Árni. Mynd: Gauti Páll.

Nokkrar vettvangsmyndir frá Þorsteini Magnússyni (1.-4. bekkur) og Gauta Páli Jónssyni (5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur)

- Auglýsing -