Tíunda og næstsíðasta umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Helgi Áss er í vænlegri stöðu með 1½ vinnings forskot á Vigni Vatnar.

Báðir fá þeir erfiðar skákir í dag. Helgi teflir við Guðmund Kjartansson, sem hefur unnið þrjár skákir í röð eftir skrykkjóta byrjun. Vignir teflir við Hannes Hlífar. Vignir þarf nauðsynlega að minnka forystu Helga Áss niður í a.m.k. einn vinning en þeir mætast í lokaumferðinni á morgun.

Umferð dagsins:

  • Guðmundur Kjartansson (5) – Helgi Áss Grétarsson (8)
  • Vignir Vatnar Stefánsson (6½) – Hannes Hlífar Stefánsson (4½)
  • Bárður Örn Birkisson (3½) – Hilmir Freyr Heimisson (5½)
  • Dagur Ragnarsson (4½) – Hjörvar Steinn Grétarsson (4½)
  • Lenka Ptácníková (2) – Olga Prudnykova (2)
  • Héðinn Steingrímsson (3) – Alekasandr Domalchuk-Jonasson (5) 0-1*

Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum. 

 

- Auglýsing -