Norðurlandamót stúlkna fer fram helgina, 26.-28. apríl, í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Þátt taka 40 stúlkur og þar af 13 íslenskar!

A-flokkur (u20)

Tíu keppendur taka þátt. Fulltrúi Íslands er reynsluboltinn, Iðunn Helgadóttir (1813), sem teflir í fyrsta skipti í a-flokki.

Mótið á Chess-Results

B-flokkur (u16)

14 keppendur taka þátt og á Ísland fimm fulltrúa. Reynsluboltinn Guðrún Fanney Briem er stigahæst fulltrúa okkar í b-flokki. Auk hennar taka þátt Katrín María JónsdóttirMargrét Kristín Einarsdóttir, Sóley Kría Helgadóttir og Hrafndís Karen Óskarsdóttir. Allar að tefla á sínu fyrstu Norðurlandamóti nema Katrín María.

Mótið á Chess-Results

C-flokkur (u13)

16 keppendur taka þátt og þar af á Ísland 7 fulltrúa. Fulltrúar Íslands eru Silja Rún Jónsdóttir (1509), Emilía Embla Berglindardóttir (1505), Sigrún Tara Sigurðardóttir (1468), Elsa Margrét AðalgeirsdóttirTara Líf IngadóttirHalldóra Jónsdóttir og Emilía Sigurðardóttir.

Mótið á Chess-Results

Fyrsta umferð verður tefld kl. 18 í dag, föstudag. Mótinu verður svo framhaldið á laugardag og sunnudag með umferðum kl. 9 og 15. Alls eru tefldar fimm umfeðir.

Beinar útsendingar verða frá öllum skákum mótsins.

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar

- Auglýsing -