Verðlaunahafar í A-flokki ásamt Jóhönnu og Guðlaugu
Helgi Áss, nýkrýndur Íslandsmeistari, lék fyrsta leikinn í úrslitaskák Iðunnar og Nienke

Norðurlandamóti stúlkna í skák lauk fyrr í dag í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Mikil spenna var á lokametrunum. Íslendingar fengu ein verðlaun en Iðunn Helgadóttir hreppti bronsið í A-flokki. Guðlaug Þorsteinsdóttir, fyrsti Íslands- og Norðurlandameistari kvenna í skák, afhenti verðlaunin.

A flokkur

Iðunn átti undir högg að sækja eftir byrjunina og Nienke pressaði stíft á stöðu hennar. Iðunn hélt stöðunni saman og á einum tímapunkti gat hún snúið dæminu við og fengið betra tafl en missti af möguleikanum. Í kjölfarið skiptist upp á liði og jafnteflið var ekki umflúið. Iðunn fékk 3,5 vinning og endaði í 3. sæti sem er frábær árangur hjá henni á sínu fyrsta ári í A-flokki.

Lokastaðan í A flokki
Verðlaunahafar í A-flokki ásamt Jóhönnu og Guðlaugu

B flokkur

Guðrún Fanney tefldi mjög sveiflukennda skák. Hún barðist þó vel og hélt sér inni í baráttunni og uppskar jafntefli. Guðrún fékk 3 vinninga og endaði í skiptu 3. sæti en neðar á stigum. Hún hefði vel getað náð í verðlaun á mótinu en tímanotkunin truflaði hana í nokkrum skákum.

Katrín María tefldi mjög góða skák. Upp kom Meran-afbrigði slavneskrar varnar og Katrín fékk fljótlega yfirburðar stöðu. Hún bætti stöðuna jafnt og þétt og sigldi öruggum sigri í höfn.
Katrín María fékk 3 vinning og endaði í skiptu 3. sæti en lægri á stigum.
Margrét Kristín fékk betra tafl eftir byrjunina en voru mislagðar hendur í framhaldinu, missti tökin á stöðunni og tapaði. Margrét er að stíga sín fyrstu skref á þessum vettvangi, tefldi margar góðar skákir og fékk dýrmæta reynslu upp á framhaldið að gera.

Hrafndís Karen og Sóley Kría mættust innbyrðis. Sóley fékk heldur betra tafl eftir byrjunina og komst út í hagstætt endatafl sem hún hafði að vinna.

Sóley endar með 2 vinninga. Tefldi mjög vandað í mótinu og átti líklega meira inni. Hrafndís tapaði öllum sínum skákum en fékk dýrmæta reynslu. Hrafndís var að tefla í eldri flokk en hún hefði átt að vera í þar sem hún kom inn í mótið sem aukakeppandi.

Lokastaðan í B flokki
Verðlaunahafar í B flokki

C flokkur

Emilía Embla fékk þrönga og erfiða stöðu eftir byrjunina en náði að koma sér inn í skákina. Eftir töluverðar flækjur tapaði hún liði og varð að leggja niður vopn.
Emilía Embla fékk 2,5 vinning, tefldi heilt yfir mjög vel á mótinu.

Halldóra tefldi byrjunina af miklum krafti og fékk góð færi. Hún missti þó þráðinn í sókninni og lenti í endatafli peði undir sem henni tókst að halda eftir miklar sveiflur.
Halldóra endar með 3 vinninga sem er frábær árangur á hennar fyrsta móti fyrir Íslands hönd.

Sigrún Tara fékk frábæra stöðu eftir byrjunina og hafði fullkomna stjórn á stöðunni. Hún gerði smá mistök í flækjunum og sú færeyska komst aftur inn í baráttuna. Skákin skipti eftir það nokkrum sinnum um eigendur en Lisa Xin vann að lokum.
Sigrún fékk 2 vinninga og tefldi margar mjög góðar skákir en var óheppin á seinni stigum skákanna.

Elsa Margrét fékk hörkufæri eftir byrjunina gegn Elli-Sofie. Elsa stóð á tímabili til vinnings en varð fótaskortur í sókninni og tapaði liði. Eftir það var fátt um fína drætti í stöðu Elsu og hún tapaði. Svekkjandi tap.
Elsa endaði með 1 vinning en fékk mikla reynslu á mótinu.

Tara Líf fékk prýðilega stöðu eftir byrjunina en missti af taktískum færum andstæðingsins og tapaði liði. Hún barðist þó eins og ljón, kom sér aftur inn í skákina og landaði jafntefli.
Tara endar með 2 vinninga. Hún tefldi margar góðar skákir og fór langt á miklum baráttuanda.

Silja Rún hafði hvítt á Emilíu S. Emilía hafði góða stöðu eftir byrjunina en kóngssókn Silju hleypti skákinni upp og gaf henni hættuleg færi. Eftir miklar sveiflur vann Silja Rún.
Silja endaði með 2 vinninga en Emilía tapaði öllum sínum skákum. Dýrmæt reynsla sem hægt er að byggja á.

Lokastaðan í C flokki
Verðlaunahafar í C-flokki

Norðurlandamótið var ákaflega vel heppnað. Aðstæður til fyrirmyndar og allir keppendur og fylgdarfólk ánægt með skipulagið og veitingar.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir var mótsstjóri, Daði Ómarsson var skákdómari mótsins, Björn Ívar Karlsson sá um beinar útsendingar og sá þjálfun íslenska hópsins ásamt Helga Ólafssyni skólastjóra Skákskólans. Birna Halldórsdóttir sá um veitingar og fékk mikið lof fyrir það.

Heimasíða mótsins
Chess-results
Beinar útsendingar

- Auglýsing -