Íslandsmótinu í skák lauk í gær þegar lokaumferðin fór fram í Mosfellsbæ þar sem skákmenn hafa leitt saman hesta sína síðastliðna daga. Spennan var lítil fyrir lokaumferðina þar sem Helgi Áss Grétarsson hafði þá þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Helgi endaði mótið á stuttu jafntefli við Vigni Vatnar Stefánsson fráfarandi meistara og fór því taplaus í gegnum mótið.
Skák þeirra í lokaumferðinni varð aldrei skemmtileg. Skipt var upp á drottningum snemma í mótteknu drottningarbragði og í kjölfarið komu fjöldakaup á hrókum á c-línunni og sverðin slíðruð.
Þó skák þeirra hafi klárast ansi snemma var hún ekki fyrst til að klárast. Hilmir Freyr náði að leggja Lenku að velli í aðeins 12 leikjum. 11. leikur svarts …Bc8?? bauð hvítum upp á nokkuð klassíska fléttu.
12.Re6! og svartur gafst upp

Olga Prudnykova náði að enda mótið vel með því að leggja Dag Ragnarsson að velli í sóknarskák. Olga fórnaði skiptamun, er alls ekki feimin við að fórna liði og fékk fína bætur.
Lokafléttan var svo nett
48.Df8+! og svartur gafst upp, hvítur drepu til baka á f8 með fráskák og drottningin er völduð.
Bárður Örn kórónaði fínt mót með því að nýta sér mistök Hannesar í tímahraki. Hannes hafði tögl og haldir en glannalegur leikur hans með eigið g-peð opnaði flóðgáttirnar að hans eigin kóng.
Það virðist nokkurn veginn hefð að Guðmundur Kjartansson eigi síðustu skákina á Íslandsmótinu og á því varð engin breyting í ár. Hann náði í góðan sigur á Aleksandr Domalchuk-Jonassyni í lokaumferðinni og kláraði flottan endasprett, 4,5 vinningur í 5 síðustu skákunum.
Útsending umferðarinnar
Úrslit
Nokkuð fjörug lokaumferð fyrir utan þetta eina stutta jafntefli hjá Helga og Vigni.
Lokastaðan
Sigur Helga verður að teljast sanngjarn, 9 vinningar af 11 og fór taplaus í gegnum mótið. Hjörvar var hársbreidd frá því að laga mótið sitt það vel að hann héldi sér yfir 2500 elóstigum en nú er staðan þannig að enginn er yfir 2500-stiga múrnum. Hjörvar er stigahæstur sem fyrr en Helgi Áss lyftir sér í þriðja sætið.
Bárður Örn var aflakóngur mótsins, hækkar um heil 60 stig fyrir árangur sinn á mótinu, sem var góður! Hilmir kom þokkalega út stigalega og Guðmundur reddaði sér vel eins og áður sagði með góðum endaspretti.
Mosfellsbær fær þakkir fyrir að útvega mótsstað. Bærinn gerði allt sem þeir gátu þegar beðið var um eitthvað, tjöld fyrir glugga, auka þröskuld og fleira. Kann SÍ þeim bestu þakkir fyrir. Þórir Benediktsson sá um skákstjórn og fórst það vel úr hendi.


- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube (hefjast á milli 16:30-17:00)
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase