Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram í ár sem endranær! Teflt verður í nýlegum glæsilegum höfuðstöðvum bankans, Reykjastræti 6. Mótið fer fram sunnudaginn 1. desember og hefst kl. 14 og stendur til kl. 17:30-18:00.

Flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar taka þátt. Tímamörkin eru 3+2 og tefldar eru þrettán umferðir. 

Margir af sterkstu skákmönnum þjóðarinnar taka þátt. Má þar nefna stórmeistarana Jóhann Hjartarson, Helga Áss Grétarsson, Braga Þorfinnsson og Þröst Þórhallsson.

Úrvalsaðstæður verða á skákstað og fjórar fyrstu skákirnar sýndar beint á risaskjá á staðnum.

Mótið á Chess-Results

Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

 FYRRI SIGURVEGARAR 

  • 2023 – Vignir Vatnar Stefánsson
  • 2022 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2021 – Helgi Ólafsson
  • 2020 – Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2018 – Jóhann Hjartarson
  • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
  • 2016 – Jóhann Hjartarson
  • 2015 – Þröstur Þórhallsson
  • 2014 – Héðinn Steingrímsson
  • 2013 – Helgi Ólafsson
  • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 – Henrik Danielsen
  • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
  • 2009 – Héðinn Steingrímsson
  • 2008 – Helgi Ólafsson
  • 2007 – Héðinn Steingrímsson
  • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson 

*Mótsstig reiknast svo

  1. Buchols -1
  2. Buchols
  3. Sonneborn-Berger
  4. Innbyrðis úrslit
  5. Flestir sigrar
- Auglýsing -