16-manna úrslit á Síminn Invitational hófust síðastliðið sunnudagskvöld. Mótið er með nánast sama sniði og Íslandsmótið í Netskák sem fram fór fyrir áramót. 16 keppendur tefla útslátt þar til við fáum sigurvegara.

Á fyrsta kvöldinu mættust tveir reyndir stórmeistarar sem unnu sér keppnisrétt með því að vera í topp 8 á síðasta móti annarsvegar og tveir skákmenn sem komust inn í gegnum undanmótið hinsvegar. Fyrirfram hefði mátt búast við að stórmeistararnir myndu hafa betur.

Helgi Ólafsson að tafli.

Í fyrra einvíginu mætti stórmeistarinn Helgi Ólafsson, sem lenti í öðru sæti fyrir áramót, kandídatameistaranum Halldóri Brynjari Halldórssyni.

Helgi hefur farið nokkuð vel í gegnum sín einvígi í þessum mótum og yfirleitt náð að lesa andstæðinga sína vel og mætt með „gameplan“ í sín einvígi. Helgi þekki Halldór Brynjar og hans skákstíl auðvitað mjög vel enda farið með Halldóri í „gamla daga“ á ýmis mót og öðrum skákmönnum á hans aldursbili og þekki því bæði hans byrjanir og stíl mjög vel.

Helgi ákvað að draga strax vígtennurnar úr Grunfeldsvörn Halldórs með því að beita Torre uppstillingu. Þetta herbragð virtist koma Halldóri úr jafnvægi strax í fyrstu skákinni.

Í skák númer tvö virtist Helgi einnig klár í slaginn og mætti væng-gambít Halldórs í sikileyjarvörn með því að hálfpartinn nálgast svörtu stöðuna sem franska vörn peði yfir. Sú leikaðferð gekk upp.

Staðan orðin 2-0 og Helgi með hvítt í næstu skák. Þar sem einvígin í 16-manna úrslitum eru nú styttri (6 skáka einvígi) var orðið ljóst að brekkan var orðin ansi brött hjá Halldóri. Helgi vann næstu skák með hvítu og nægði því jafntefli til að klára dæmið.

Helgi bjó að því í síðustu skákinni að nægja alltaf jafntefli og endaði hann á að vinna þá skák líka og einvígið endaði því 4-0 Helga í vil sem er kominn í 8-manna úrslit.

Í seinna einvíginu mættust stórmeistarinn Jóhann Hjartarson og FIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson. Flestir hefðu veðjað á sigur Jóhanns fyrirfram en Ingvar fékk gott sjálfstraust í fyrstu skákinni.

Ingvar fórnaði skiptamun í enska leiknum en fékk ekki alveg jafn góðar bætur og Karpov með hvítu gegn Jóhanni í áskorendaeinvígi þeirra í sömu byrjun. Bæturnar voru engu að síður ansi góðar skv. apparötum en Ingvar fann ekki bestu leiðina til að þróa stöðuna og Jóhann bætti stöðu sína jafnt og þétt.

Jóhann gerðist þá sekur um fingurbrjót sem gaf heilan hrók. Ingvar komst í 1-0 og náði í mikilvægt sjálfstraust strax í fyrstu skák.

Jóhann svaraði með enska leiknum í skák númer tvö með hvítu. Jóhann plataði Ingvar í afbrigði sem hann kann ekki nægjanlega vel. Ingvar með svart fann réttu hugmyndina að leika …d5 í miðtaflinu en hefði átt að sleppa drápinu á d4 fyrst eins og Helgi benti á í útsendingu einvígsins. Svartur náði undirtökum eftir lélegan drottningarleik hvíts og Ingvar komst óvænt í 2-0 í einvíginu.

Í þriðju skákinni breytti Ingvar til og valdi 1.d4 og náði fínni stöðu úr nokkurs konar Bogo-indverja. Ingvar fann spil á réttum tíma og biskup hvíts vaknaði til lífs á réttum tíma „frá hlið“ og eftir Bh3 voru varnir svarts að hruni komnar.

Staðan orðin 3-0 þegar kom í hlé. Þá tók Jóhann við sér. Fyrst vann Jóhann gegn franskri vörn Ingvars. Ingvar var við það að komast inn í skákina í lokin eftir að hafa misst af riddaraskák Jóhanns í miðtaflinu sem tryggði hvítum unnið tafl. Mistök Jóhanns í peðsendatafli kostuðu næstum einvígið þá og þar en Jóhann var sterkari á svellinu í tímahraki.

Fimmta skákin var æsispennandi. Upp kom kóngsindversk vörn og Ingvar beitti skörpu afbrigði sem hefur gefist honum vel. Hvíta staðan var góð en það býr alltaf ákveðin dýnamík í svörtu stöðunni og Jóhann endaði á að taka þessa skák á reynslunni og seiglu.

Farvatnið farið að snúast all verulega í einvíginu. Jóhann steig aftur fast til jarðar með hvítu og hélt góðri stjórn á stöðunni gegn hliðarafbrigði Ingvar í sikileyjarvörn. Á ögurstundu leyfði Jóhann mótspil og allt í einu ríghélt Ingvar í mátnet á fyrstu reitaröð sem var nægjanlegt ryk í augu hvíts til að ná að snúa taflinu.

Lokaniðurstaðan því óvæntur 4-2 sigur Ingvar sem mun mæta Helga Ólafssyni í 8-manna úrslitum.

Fyrsta keppnisdag er hægt að sjá í myndbandinu hér að neðan, fyrst Helgi gegn Halldóri og svo Jóhann gegn Ingvar sem hefst ca. á 56 mínútu í myndbandinu.

„Bracket“ mótsins má sjá hér að neðan:

16-manna úrslit halda áfram 26. janúar á sjálfum skákdeginum og verður teflt á tvo næstu sunnudaga og svo halda 8-manna úrslit áfram í byrjun mars og mótinu lýkur loks með úrslitum 6. apríl.

26. janúar

  • Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – Bragi Þorfinnsson
  • Helgi Áss Grétarsson – Hannes Hlífar Stefánsson
  • Björn Þorfinnsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson

9. febrúar

  • Guðmundur Kjartansson – Vignir Vatnar Stefánsson
  • Davíð Kjartansson – Símon Þórhallsson
  • Hilmir Freyr Heimisson – Dagur Ragnarsson

Tefld verða sex skáka einvígi í 16 manna úrslitum. Bráðbanaskákir ef jafnt er.

- Auglýsing -