Sextán manna úrslitum Síminn Invitational lýkur í kvöld. Þrjár eitraðar viðureignir verða í boði og sem fyrr sæti í 8-manna úrslitum. Þegar hafa fimm skákmenn tryggt sér farseðil í átta manna úrslit og nú ræðst hverjir verða síðustu þrír.
Það er RÍSÍ sem heldur mótið í samstarfi við SÍ. Styrktaraðilar keppninnar eru Síminn, Lengjan, Collab og Ljósleiðarinn.
Dagskrá kvöldsins er eftirfarandi:
Fyrsta einvígið er á milli alþóðlega meistarans Davíðs Kjartanssonar og FIDE-meistarans Símons Þórhallssonar. Báðir komu þeir sér í úrslitin í gegnum undankeppni mótsins. Davíð er margfaldur Íslandsmeistari í netskák en Símon er sá eini sem hefur komið sér tvisvar í gegnum undankeppni mótsins.
Viðureignin hefst kl. 18 og telja veðbankar Davíð heldur líklegri.
Sá sem hefur betur mætir sigurvegaranum úr stórmeistaraeinvígi Guðmundar og Vignis.
Viðureign Davíð og Símons á Lengjunni.
Önnur viðureign kvöldsins er á milli alþjóðlegu meistaranna Dags Ragnarssonar og Hilmis Freyr Heimissonar og ætti að hefjast fljótlega upp úr kl. 19.
Spennandi viðureign. Dagur teflir í fyrsta skipti í keppninni og hefur lengi verið einn stigahæsti netskákmaður landsins. Hilmir er einnig gríðarlega sterkur netskákmaður og er að mati Lengjunnar heldur liklegri.
Sigurvegarinn mætir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í átta manna úrslitum.
Viðureign Dags og Hilmis á Lengjunni
Lokaviðureignin sem ætti að hefjast upp úr kl. 20 er engin smá viðureign. Vignir Vatnar Stefánsson, okkar sterkasti skákmaður, mætir Guðmundi Kjartanssyni sem sýndi í fyrra að hann er eitursnjall netskákmaður.
Lengjan hefur meiri trú á sigri Vignis sem er jú einnig stigahæsti netskákmaður landsins.
Sigurvegarinn mætir annað hvort Davíð eða Símoni eins og áður hefur komið fram.
Viðureign Vignis og Guðmundar á Lengjunni.
Lýsendur kvöldsins verða Björn Ívar og Ingvar Þór.
„Bracket“ mótsins má sjá hér að neðan:

9. janúar
- Helgi Ólafsson – Halldór B. Halldórsson 4-0
- Jóhann Hjartarson – Ingvar Þór Jóhannesson 2-4
26. janúar
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – Bragi Þorfinnsson 0-4
- Helgi Áss Grétarsson – Hannes Hlífar Stefánsson 0-4
- Björn Þorfinnsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson 4-2
9. febrúar
- Davíð Kjartansson – Símon Þórhallsson
- Hilmir Freyr Heimisson – Dagur Ragnarsson
- Guðmundur Kjartansson – Vignir Vatnar Stefánsson
Tefld verða sex skáka einvígi í 16 manna úrslitum. Ef jafnft 3-3 þá teflt til þrautar þar til annar hvor vinnur skák.
Vegna mikilla anna íslenskra skákmanna næstu vikur verður smá hlé á keppninni. Átta manna úrslit fara fram 9. og 16. mars. Teflt verður á hverjum sunnudegi þar til mótinu lýkur 6. apríl með úrslitum.
Í átta manna úrslitum mætast:
- Bragi Þorfinnsson – Hannes Hlífar Stefánsson
- Helgi Ólafsson – Ingvar Þór Jóhannesson
- Aleksandr – Dagur/Hilmir
- Guðmundur/Vignir – Davíð/Símon















