Íslenska liðið á HM öldungasveita sem fram fer í Prag í Tékklandi vann aftur sigur gegn ensku liði í 2. umferð mótsins sem fram fór í dag. Íslenska liðið er orðið ansi reynt á þessum 50+ heims- og evrópumeistaramótum og er liðið líklegt í baráttu um málm á mótinu sem endranær. Liðið er númer 3 í stigaröðinni af alls 54 sveitum.
Viðureign dagsins:
Íslenska liðið stigahærra á öllum borðum en enska liðið nokkuð reynt og sérstaklega hefur Stephen Dishman átt það til að reynast okkur erfiður!
Jóhann hafði hvítt á fyrsta borði gegn stórmeistaranum Nigel Davis (2294). Jóhann virtist fá nokkuð þægilegt tafl í sikileyjarvörninni framan af en missti eilítið tökin seint í miðtaflinu en þó aldrei þannig að hann væri í einhverri hættu. Taflið líklega nokkuð þæft þegar samið var.
Á öðru borði hafði Þröstur svart gegn „Diskamanninum“. Þröstur tefldi hvasst afbrigði gegn Catalan en sá enski virtist tilbúinn í það og hafði mikið tímaforskot snemma. Þröstur náði að flækja taflið og þvinga hvítan í að gefa drottningu fyrir hrók og mann en það reyndist Þresti í hag og hann náði að landa vinningnum.
Á þriðja borði tefldi Helgi Ólafsson sína fyrstu skák og fékk mjög þægilegt tafl úr London-systeminu þar sem hvítur stjórnar borðinu mjög þægilega með góð tök á d4 og e5 reitunum. Stöðutýpa sem hentar Helga mjög vel og hann vélaði andstæðing sinn niður.
Jón L. Árnason fær líklegast ekki jólakort frá Frostick hjónunum í ár allavega. Eftir að hafa lagt Frú Frostick í gær lagði Jón nú Clive Frostick að velli. Í gær lék Helen af sér hreinum hrók en eiginmaðurinn lét Jón hafa aðeins meira fyrir að vinna hrók af sér en Jón þurfti að láta biskup fyrir hrókinn í þetta skiptið…sem dugði til!
Niðurstaðan aftur nokkuð þægilegur 3,5-0,5 sigur sem eru mjög góð úrslit!
Í 3. umferð mætir íslenska liðið Kvennaliði Kína

Hér eru kínverskri skákmenn af „gamla kínverska skákskólanum“ sem er oft erfitt að lesa í og geta verið óþægilegir andstæðingar. Sé haldið rétt á spöðunum ættum við þó að fá íslenskan sigur á morgun í þriðju umferðinni!
Heimsmeistaramótið í Prag eru níu umferðir og verður frídagur 22. febrúar að loknum fimm umferðum en að öðru leiti verður teflt á hverjum degi.














