Alþjóðlegu meistararnir Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Hilmir Freyr Heimisson kláraðu í dag flokkaskiptu mótin á Hotel Stockholm North by First hotels young talent, í Svíþjóð. Sasha tefldi í GM flokki en Hilmir í IM flokki. Heilt yfir var frammistaðan á pari eða undir en báðir mæta þeir í góðu „taflformi“ á Íslandsmótið á Blönduósi.
GM-flokkur
Aleksandr hafði 2 vinninga eftir 6 umferðir og mætti tékkneskum alþjóðlegum meistara í sjöundu umferðinni í gær. Eftir tvísýna skák hafði sá tékkneski betur.
Í seinni skák gærdagsins samdi Sasha svo stutt við efnilegan Norðmann.
Jafntefli varð aftur niðurstaðan í lokaumferðinni en þar átti Sasha ágætis sénsa á köflum gegn þýskum stórmeistara.
Lokaniðurstaðan varð að Sasha fékk 3 vinninga af 9 mögulegum sem er undir væntingum en engu að síður tapaði Sasha aðeins um 3 elóstigum.
IM-flokkur
Hilmir hafði 3,5 vinning fyrir daginn í gær. Í fyrri skák dagsins mætti hann slakasta keppenda flokksins, WFM frá Bahamas með tæp 1900 skákstig. Hilmir hafið nokkuð auðveldan sigur.
Í seinni skákinni mætti Hilmir öðrum kvenkyns skákmanni, Megan Paragua. Ritstjórnin ætlar að giska á að Megan sé dóttir stórmeistarans Marc Paragua sem er upprunalega frá Filipseyjum en er búsettur í Bandaríkjunum. Niðurstaðan varð jafntefli að þessu sinni.
Í lokaumferðinni varð Hilmir að lúta í dúk gegn sænska FIDE-meistaranum Carl Cederstam.
5 vinningar hjá Hilmi lokaniðurstaðan og nokkur elóstig í hafið en eins og Sasha koma þeir báðir í keppnisformi á Íslandsmótið.













