Ingvar var í miklu stuði þegar lokalag þáttarins var spilað.

Evrópumót landsliða fer fram í Batumi í Georgíu dagana 5.-14. október. Fram að móti munum við kynna EM-faranna, einn á dag. Í dag kynnum við til leiks liðsstjóra, kvennaliðsins, Ingvar Þór Jóhannesson.

Nafn:

Ingvar Þór Jóhannesson aka Xzibit aka Bitinn aka ChessViking aka UNC

Félag:

Taflfélag Reykjavíkur, Þróttur Reykjavík og West Ham en er að að íhuga félagsskipti í Liverpool

Hversu oft hefurðu farið á EM landsliða?

Alltaf síðan 2015

Á hvaða ertu að horfa á Netflix (eða annarri veitu) þessa dagana?

Horfi bara á pílu eða skák

Uppáhaldsskákmaður og af hverju?

Minni nýi uppáhaldsskákmaður er Stefán Steingrímur í Haustmótinu B-flokki, hvass, skynsamur og praktískur í allri sinni nálgun á leiknum.

Verður ManU í efri eða neðri helmingi úrvalsdeildarinnar?

Neðri en ég styð stelpurnar í liðinu og geri athugasemd við þetta endalausa enska-bolta blæti, má ekki spyrja um einhverja góða bók eða eitthvað annað?

Uppáhaldskákbyrjun og af hverju?

Frakkinn hefur verið lengst með mér þannig að verð líklega að segja það.

Hvernig slakarðu á milli umferða á mótum?

Kann ekki að slaka á, er yfirleitt andvaka að spá í stöðum og skákum.

Batumi hefur stundum verið líkt við borg í Bandaríkjunum? Gætirðu nefnt hvaða?

Kom þessi spurning ekki síðast eða þarsíðast, ég hef komið þarna tvisvar þannig að þetta er of létt.

Georgía hefur átt margar þekktar skákkonur. Hverja telur þú þá næstþekktustu?

Maia Chi hlýtur að vera númer tvö, sérstaklega eftir Netflix dæmið.

Hver verður andstæðingur Gukesh í næsta HM-einvígi?

Ég held það verði Bandaríkjamaður, ég held að reynslan sé ekki dauð og Caruana eða Nakamura ná þessu núna. Ef ég mætti velja uppáhalds myndi ég vilja sjá Nodirbek Abdusattorov.

Hvaða bók ertu að lesa þessa dagana?

Les bara skákbækur, Rock Solid Chess eftir Tiviakov er sú nýjasta.

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir EM landsliða nú?

Skák er í kringum mig alla daga þannig að skáklega þarf lítið, reyni að hafa einhverjar hugmyndir í byrjunum, andlega reyni ég að halda geðheilsu almennt, erfitt með alla anga úti og stöðugt áreiti af ýmsu tagi 😉 Líkamlega labba ég mikið og er í betra formi en oft áður að því leiti.

Hvernig tengist kvikmyndin Tinder Swindler borginni Batumi?

Aldrei heyrt um þá kvikmynd og hef því ekki hugmynd.

Markmið þín á mótinu?

Það er alltaf stefnan að gera sitt besta, Evrópumótin eru erfið og vonandi verður þetta góður skóli fyrir alla. Ég hef sjálfur ákveðin markmið sem ég vil sjá en held því fyrir sjálfan mig.

Hverja telur þú líklegasta Evrópumeistara?

Eru ekki Þjóðverjar flottir í opna en það stefnir í mjög jafnt mót þar og allt getur gerst…grunar að eitthvað óvænt lið gæti tekið þetta. Eru svo ekki heimastúlkur líklegastar í kvennaflokki, líka sterkastar á pappírnum.

Áfram?

Já já

- Auglýsing -