Vignir fær sér ferskt loft og greina má Ivanchuk í bakgrunninum að hugsa málin.

Fyrsti keppnisdagur af tveimur á Heimsmeistaramótinu í hraðskák fór fram í dag í Doha í Katar þar sem Vignir Vatnar Stefánsson náði að sýna sitt rétta andlit og var taplaus í ellefu skákum í röð eftir að hafa hikstað í fyrstu tveimur umferðunum. Vignir stendur vel eftir fyrsta keppnisdaginn og er ekki langt frá efstu mönnum. Fjórir efstu að loknum 19 umferðum munu tefla fjögurra manna útsláttarkeppni um Heimsmeistaratitilinn á morgun.

Þátttaka Vignis hefur vakið verðskuldaða athygli og á Instagram síðu Skáksambandsins má t.d. sjá innslag úr kvöldfréttum RÚV.

Við minnum á skemmtilegt efni Vignis Vatnars á Instagram síðu hans sem fyrr t.d. er hér smá innsýn í undirbúning en ef grannt er skoðað má sjá línur sem einmitt komu upp hjá Vigni í dag

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar)

En víkjum okkur að mótinu og tökum þetta umferð fyrir umferð. Vignir ætlaði sér stóra hluti enda töluvert stigahærri í hraðskák, hefur 2599 elóstig hjá FIDE í hraðskák en 2463 í atskákinin. Vignir var númer 63 í styrkleikaröð í hraðskákinni gegn 146 í atskákinni.

1. umferð

Vignir mætir hér enn einum 12 ára krakkanum, að þessu sinni Sergey Slokin frá Rússlandi með 2400 hraðskákstig. „They don’t make them like they used to!“ krakkarnir í dag ótrúlegir…allt morandi í það sem hefði áður fyrr verið kallað undrabörn!

Vignir lét það ekki á sig fá framan af skák og fékk fína stöðu. Glöggir sáu kannski að hann tefldi það sem var undiðbúið í Instagram myndbandinu hér að ofan. Sá rússneski drap ekki á f6 og því kom upp útgáfa af drekaafbrigðinu fræga.

Vignir með svart náði að brjótast í gegn eftir krefjandi dýnamískt miðtafl og vann svartur skiptamun og stóð til vinnings. Mögulega hefur Vignir gerst sekur um að slaka aðeins á einbeitingunni þarna sem bara má ekki og í stað þess að vinna með meira en -5 lék Vignir tveimur slökum leikjum og varð að gefast upp, verulega svekkjandi.

2. umferð

Greinilegt var að þetta fékk aðeins á Vigni og græddi annar Rússi, Artiyom Stribuk (2385) og 18 ára gamall vel á því. Skak.is veit ekki hvort Vignir ætlaði að drepa fyrsta á c6 og leika svo a4 en kantpeðið kom allavega fyrst.

18.a4?? og hreinn kallið í hafið 18…Dxb6. Óútskýranlegur afleikur að mörgu leiti.

Byrjunin 0 vinningar  af 2 og hér þurfti að sýna karakter eða molna niður…Vignir valdi seinni kostinn!

3. umferð

Sænskur strákur Muntean (2259) var verkefnið í þriðju umferð. Vignir lenti í smá basli í byrjuninni en vann sig út úr því og fékk tvo létta menn fyrir hrók. Verkefnið var alls ekki auðvelt í endataflinu en Vignir náði að „basla“ sig í gegnum það og ná í seiglusigur. Búið að spyrna frá botninum og leiðin lá heldur betur upp á við eftir þetta!

tefli með hvítu…nema Carlsen hafnaði því með afleik sem tapaði skákinni.

4. umferð

Vignir vann alþjóðlegan meistara frá Kazakhstan í 4. umferð. Líklegast kominn með nóg af þessum Kazökum þá ágætir séu þeir örugglega! Vignir sést einmitt spjalla við Jumbayev í lyftunni í þessu myndbandi sem var tekið fyrir hraðskákina:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar)

Vignir fór í „old faithful“ í skákinni, Catalan-byrjunina sem hefur gefist honum svo vel undanfarin ár. Andstæðingur hans tók á sig hin svokölluðu „hangandi peð“ (e. Hanging pawns) og Vignir náði nokkuð þekttu trikki í þessari peðastöðu.

16.Rc4! er ansi erfiður fyrir svartan, líklegast tapast peð þvingað í stöðunni. Vignir vann góðan sigur.

Tveir sigrar í röð, kominn aftur í 50% með 2 vinninga af 4 og sjálfstraustið og stressið væntanlega komið á betri stað þegar hér var komið við sögu.

5.umferð

Í fimmtu umferð mætti Vignir einum efnilegasta skákmanni sögunnar, Tyrkjanum Erdogmus. Hann hefur nú þegar slegið allskonar met og var í toppbaráttunni í atskákinni þar til hann rakst á einhvern Norðmann í einni af síðustu umferðunum. Virkilega verðugt verkefni og Instagrammið hjá Vigni fór aðeins yfir þetta!

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar)

Vignir hafði svart og tefldi gömlu góðu …Bd6 línuna og lenti í litlum vandræðum úr byrjuninni. Sem fyrr má benda á það að þessi byrjun og fleiri sem Vignir teflir má læra um á vefsíðu hans VignirVatnar.is þarf sem Vignir útskýrir flestar byrjanir sem hann teflir fyrir áskrifendum.

Í miðtaflinu náði Tyrkinn að landa taktísku skoti:

26.Rxg7! var réttur leikur í stöðunni og hvítur vinnur peð. Vignir varð að tefla vörnina grimmt og hann gerði það, fórnaði fleiri peðum til að virkja hrókana og náði að tvöfalda hrókana á 2. reitaröð. Virkni Vignis reyndist nóg og Tyrkinn (með verri tíma) neyddist til að taka þráskák og jafntefli niðurstaðan.

6.umferð

Hinn 15 ára rússneski alþjóðlegi meistari Lev Zverev er vafalítið verðugur andstæðingur fyrir Vigni á venjulegum degi en hér var okkar maður greinilega kominn í góðann gír. Hann vélaði sig snemma í geg neftir Catalan-byrjunina góðu (*hóst* VignirVatnar.is) og náði tökum á d-línunni og 7. reitaröð. Dæmið var svo klárað skemmtilega…

24.Hxf7! og gefið þar sem 24…Dxc7 er svarað með 25.Hxf8 og mát!

7.umferð

Undrabörnin héldu áfram að reyna að hrella Vigni. Næst var það „Messi skákarinn“ sjálfur Faustino Oro sem nú keppir við tímann um að ná að klára að verða yngsti stórmeistari sögunnar. Hver kannast ekki við að vera bara að leika sér í Lego 12 ára? Allavega ekki Oro og líklega ekki Peter Leko heldur ef út í það er farið!

Vignir tefldi Dubov línuna sem minnst er á í efsta myndbandinu í fréttinni. Línuna þarf að tefla af krafti og Vignir gerði það, og fékk betra með svörtu. Vantaði kannski aðeins að hamra járnið í 29. leik t.d. en náði því ekki. Vignir lenti í smá vörn sem var kannski óþarfi en staða hans nægjanlega virk og mislitir biskupar tryggðu það að jafnteflið var aldrei í hættu.

Vignir hér í fínum gír með 4 vinninga af 7 eða +1 eins og oft er talað um þ.e. vinningaskákir umfram tapskákir.

8.umferð

Mjög flókin og skemmtileg skák gegn rússneskum stórmeistara Tsaruk (2470) þar sem Vignir fórnaði hrók fyrir hættuleg frípeð og stóð til vinnings á köflum. Í endataflinu endurtók Vignir óvart sömu stöðuna þrisvar sinnum og Rússinn slapp með jafnteflið.

9.umferð

Svissneskur alþjóðlegur meistari var svo æstur að skipta upp á köllum og jarma á jafntefli gegn Vigni að hann lék af sér manni, ein auðveld sem er alltaf vel þegið!

5,5 vinningur af 9. Efstu menn hér voru Erigaisi og Abdusattorov með 7,5 vinning en pakkinn fyrir aftan þéttur, Magnus Carlsen aðeins að gefa eftir með 6,5 vinning.

10.umferð

Vignir gerði jafntefli við bosnískan stórmeistara í 10. umferð. Alltaf öruggt tafl á Vigni en hann tók ekki mikla sénsa og jafntefli var sanngjarnt í lokin, Vignir gat kannski reynt að planta riddaranum á e4 og þæfa taflið en hefði þá þurft að taka einhverja áhættu. Jafntefli hér.

6 vinningar af 10, ansi gott miðað við að byrja 0/2!

11.umferð

Næst var það Ahmad Kagan, gríðarlega efnilegur Azeri. Kagan er aðeins 14 ára og margfaldur Evrópumeistari ungmenna í skák. Vignir með svörtu náði hér góðum endataflssvíðing í skák þar sem hann var peði yfir eftir miðtaflið og í endataflinu og alltaf með betri sénsa þó skákin hafi verið tvísýn á köflum.

7 af 11 og hér er Vignir farinn að nálgast efstu menn og í fyrsta skipti tefla á topp 30 borðunum þar sem þeir allra bestu halda sig!

12.umferð

Le Quang Liem er sterkasti skákmaður Víetnama, hefur haldið sig í 2700+ ansi lengi og alltaf hættulegur í styttri skákum. Vignir mætti honum í 12. umferðinni og hafði hvítt. Upp kom Catalan, sama afbrigðið af því í annað eða þriðja skiptið allavega. Taflið var jafnt lengst af en Víetnaminn fékk nokkur augnablik til að ná yfirhöndinni en missti af því og Vignir hélt taflinu jöfnu, fínt jafntefli við gríðarlega sterkan skákmann.

13.umferð

Mamedyarov að tafli. Mynd: Lennart Ootes.

Í lokaumferð dagsins var það algjörlega efsta hillan. Sjálfur Shakhryar Mamedyarov, stigahæsti skákmaður Azera. Mamedyarov hefur farið yfir 2800 stiga múrinn og var um tíma númer tvö í heiminum. Algjörlega stórkostlegur skákmaður.

Mamedyarov átti reyndar harma að hefna hér en Vignir lagði hann á velli í sterku hraðskákmóti fyrir rétt rúm ári sem haldið var í kjölfarið á London Chess Classic. Azerinn tefldi gríðarlega hvasst gegn Vigni en Vignir gaf sig ekkert í skák dagsins og tók á móti af fullum krafti.

Ef eitthvað er var Shakh heppinn að gloppurnar í peðastöðunni hans kostuðu ekkert en eftir að skiptist upp í endatafl voru úrslitin eiginlega ljós. Vignir var reyndar peði yfir í lokastöðunni og samdi því með „betra í blöðunum“ eins og sumir kalla það stundum!

Frábær niðurstaða, 8 vinningar af 13 og enn og aftur enn betra í ljósi þess að byrja á að fá núll af tveimur. Fyrir neðan Vigni eru skákmenn á borð við Niemann og Anish Giri svo einhverjir séu nefndir!

Í efstu sætum með 10 vinninga af 13 eru þeir Erigaisi, MVL og Caruana. Carlsen þarf að eiga góðan lokadag, hefur 9 vinninga og er í pakkanum sem er að berjast um topp fjögur sætin. Topp fjórir tefla svo útslátt um titilinn eins og áður sagði.

Samantekt á deginum komin á Instagrammið, viðtal við Vigni:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar)

Á morgun er lokadagur á Heimsmeistaramótinu í hraðskák og hefst taflið klukkan 11:00 að íslenskum tíma.

*** FRÉTTIN VERÐUR UPPFÆRÐ MEÐ MYNDUM ÞEGAR ÞEIR BERAST FRÁ DOHA ***

- Auglýsing -