Sjötta umferð Úrvalsdeildar fór fram í gær. Óhætt er að segja að staðan sé enn meira spennandi eftir hana en fyrir en öll úrslit gærdagsins urðu til þess að spennan á toppi og botni eykst.

Eyjamenn unnu KR-inga 5-3 í spennandi viðureign þar sem úrslitin réðust á neðri borðunum.

Fjölnismenn unnu sannfærandi sigur á Breiðabliki þar Litháíski herinn hjá Fjölni á efri borðunum raðaði inn vinningum. KR og Fjölnir hafa 9 stig og TV hefur 8 stig.

Taflfélag Reykjavíkur vann Víkingaklúbbinn með minnsta mun þar sem íslensku stórmeistararnir á neðri borðunum röðuðu inn vinningunum og galopnaði botnbaráttuna.

Víkingar og Breiðablik hafa 4 stig og TR hefur 2 stig.

Staðan

Urslit gærdagsins

Sjöunda umferð hefst kl. 19 í kvöld í TR. Á morgun flyst mótið í Rimaskóla og hefjast allar deildir kl. 11.

Umferð kvöldsins verða gerð betri í frétt síðar í dag.

Myndir: Tómas Tandri

- Auglýsing -