Þröstur að tafli Mynd: Mark LIvshitz / Heimasíða mótsins

Þriðja umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu. Þröstur Þórhallsson og Henrik Danielsen náðu í góða sigra í 50+ flokknum og hafa báðir fullt hús.

Flokkur (50+)

Þröstur og Henrik höfðu 2 af 2 fyrir umferðina en Jóhann 1,5 vinning.

Þröstur mætti danska alþjóðlega meistaranum Jacob Sylvan og vann ótrúlega auðveldan sigur með svörtu í aðeins 22 leikjum. Sá danski missti algjörlega stjórn á stöðunni eftir  nokkra skemmtilega og kröftuga leiki. Hvítur varð að finna varnargírinn en þess í stað lenti hann í taktík sem tapaði liði.

Henrik mætti einnig alþjóðlegum meistara Duilio Collutis frá Ítalíu. Hér náði Henrik í mikinn þolinmæðis og seiglusigur úr nánast engu í endatafli. Fór Henrik í nokkra hringi með mennina áður en hann lét til skarar skríða og varnir svarts héldu ekki að lokum.

Jóhann lagði CM Di Fonzo að velli með svörtu í skák þar sem hann hafði lengst af yfirhöndina en þurfti þó að forðast nokkrar jarðsprengjur á leiðinni. Í tímahraki lék Ítalinn sig í mát.

4. umferð fer fram á morgun hefur Henrik svart gegn enska stórmeistaranum Daniel Gormally, Þröstur hefur hvítt gegn þýska streymaranum Cristof Sielecki og Jóhann hefur hvítt gegn spænskum IM Rahal Vives.

Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).

Flokkur (65+)

Margeir var með fullt hús fyrir umferðina og mætti velska FIDE-meistaranum Peter Varley. Margeir fékk mikla sóknarstöðu, fórnaði peði í afbrigði sem hefur gefist honum vel. Afbrigðið var t.d. notað með skiptum litum í tveimur sigurskákum á EM Taflfélaga fyrir nokkrum árum.

Skákin var ekki ósvipuð skák Jóhanns í gær að því leiti að svo virtist sem Margeir væri korteri frá að máta andstæðing sinn en einhvern veginn héldu varnir svarts. Margeir sættist já jafntefli þegar hann sá ekki leið í gegn.

Eilítið svekkjandi jafntefli en ekkert til að missa svefn yfir. Margeir hefur 2,5 af 3 og í 4. umferð mætir Margeir úkraínskum skákmanni Leonid Gavrish (1999) og hefur svart.

Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.

 

- Auglýsing -