Í dag fór fram lokaumferð á EM kvenna sem fram fór í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova tapaði í lokaumferðinni gegn hinni búlgörsku Andzhelika Nenova (2072). Hin úkraínska Anastasia Hnatyshyn (2207) varð óvænt Evrópumeistari en hún var númer 76 í stigaröðinni!
Skák Lenku í lokaumferðinni fór úrskeiðis í byrjuninni og lið tapaðist snemma. Lenka komst þar af leiðandi aldrei inn í skákina af neinu viti.
Tapið þýðir að Lenka endaði með 4,5 vinning af 11 mögulegum og endar Lenka í 127. sæti (102 í stigaröð í byrjun móts). Rétt rúmlega 30 skákstig töpuðust á mótinu.
Sigurvegari mótsins varð eins og áður sagði óvæntur. Hnyatsyhn er ung úkraínsk stúlka fædd 2010 og með 2207 elóstig, númer 76 í rásröðinni. Stigin verða ekki vandamál eftir þetta mót því að 9 vinningar af 11 voru niðurstaðan 2580 rating performance og hækkar hún skv. chess-results um 214,4 elóstig! Í 2-4. sæti með 8,5 vinning voru svo jafnar þær Sabrina Vega Gutierrez, Olga Badelka og Nurgyl Salimova.
Alls tóku 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst var Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka var númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu.



















