Hannes Hlífar Stefánsson (2538) vann enska FIDE-meistarann Laurence Webb (2296) í 3. umferð Sunway Sitges-mótinu í Barcelona. Hannes er meðal sextán keppenda sem hafa fullt hús.
Guðmundur Kjartansson (2448) tapaði fyrir indverska undrabarninu Praggnanandhaa (2586) og hefur 2 vinninga.
Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við indverska stórmeistarann S.P. Sethuraman (2638). Skákin verður í beinni útsendingu.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15:30 nema lokaumferðin)
- Chess-Results
- Auglýsing -














