Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2500) stóð sig afar vel á alþjóðlega mótinu í Árósum sem lauk í gær. Henrik hlaut 6½ vinning í skákunum níu. Gerði jafntefli í lokaumferðunum tveimur.
Úrslit Henriks

Árangur Henriks samsvaraði 2599 skákstigum og hækkar hann um 12 skákstig fyrir hana.
Alþjóðlegi meistarinn og Fjölnismaðurinn Jesper Søndergård Thybo (2576) sigraði á mótinu en hann hlaut 7 vinninga. Hann náði stórmeistaraáfanga. Ritstjóra er ekki kunnugt um hvort það sé lokaáfanginn en miðað við stigatöluna hlýtur það að vera líklegt.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 17)
- Úrslitaþjónusta
- Auglýsing -














