Lokastaðan í einvíginu. Mynd: Chess24.

Magnús Carlsen (2881) vann Ding Liren (2836) í undanúrslitum boðsmóts Magnúsar sem fram fór á Chess24 í gær. Á ýmsu gekk og tapaði Magnús annarri skákinni í gær þegar hann lék sig klaufalega í mát. Hann náði að snúa hlutunum aftur sér í vil með sigrum í 3. og 4. skákunum og vann einvígið samtals 2½-1½.

Í dag fer fram úrslitaeinvígi heimsmeistarans og Hikaru Nakamura (2829).

Úrslitaeinvígið hefst kl. 14. Tímamörkin eru 15+10. Verði jafnt verða tefldar tvær hraðskákir (5+3). Verði enn jafnt þá verður tefldur bráðabani.

Nánar á Chess24.

- Auglýsing -