Hinn tvítugi, rússneski stórmeistari, Alexey Sarana, varð í gær fyrsti Evrópumeistarinn í netskák. Hann vann Tékkann viðkunnanlega, David Navara, í úrslitaeinvígi. Armeninn Gabriel Sargassian varð þriðji.
Þar með lauk ríflega hálfmánaðarverkefni en mótið hófst 16. maí með keppni fyrir skákmenn með minna en 1400 skákstig.
Congratulations to Alexey Sarana the Champion of the many (4500 players & tens thousands followers). Modest, talented, decisive as also the runner up David Navara & the big majority of participants.vToday they demonstrated ethics showing that playing fair you can win. #TeamEurope https://t.co/UdgpQlOxcc
— Τheodoros Tsorbatzoglou (@teotsorb) May 31, 2020
Alls tóku um 40 íslenskir skákmenn þótt í mótinu. Þrír Íslendingar tóku þótt í e-flokki (2300+) og stóð Helgi Áss Grétarsson sig best þeirra. Hann hlaut 6,5 vinning af 16 mögulegum í undanrásunum tveir. Guðmundur Kjartansson hlaut 6 vinninga.

















