Undanúrslit ögurskákmótsins á LiChess sem skákklúbburinn í Saint Louis stendur fyrir hófust í gær. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen og Wesley So byrjaðu vel og eru báðir í 6-2 forystu á móti Levon Aronian og Fabiano Caruana. Sá forysta getur farið fljótt því lokaskákirnar báðum í einvígunum gilda þrefalt.

Um fyrirkomulag mótsins 

Átta skákmenn taka þátt og teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi. Telfdar eru tólf skákir í hverju einvígi með tímamörkunum 10+5.

Skákir nr. 5-6 og 11-12 og er hins vegar skokallaðar ögurskákir (clutch games). Skákir 5 og 6 gilda tvöfalt og skákir 11 og 12 gilda þrefalt. Það eru því 18 vinningar í boði í hverju einvígi.

Nánar um mótið á Chess24.

- Auglýsing -