Sérstök athygli er vakin á því að heillaóskaskrá bókarinnar verður lokað á miðnætti í kvöld, 30. júní.
Vinum og velunnurum Friðriks gefst enn kostur á því að fá nöfn sín skráð á sérstaka heillaóskaskrá – Tabula gratulatoria – sem birt verður í ritinu. Unnið er að lokafrágangi verksins, sem er hið vandaðasta og mikið að vöxum, til prentunar í vikunni, svo nú eru allra síðustu forvöð til að setja sig á skrá og senda Friðriki með því heillakveðju og þakka framlag hans til skáklistarinnar.
Bókin, sem skráð er af Helga Ólafssyni, kemur út í október á vegum Hins íslenska bókmenntafélags í samstarfi við Skáksögufélag Íslands í tilefni 85 ára afmælis Friðriks fyrr á þessu ári. Hún fjallar um Friðrik, okkar fyrsta stórmeistara, og litríkan æviferil hans með sérstakri áherslu á glæsileg skákafrek hans og harðskeytta baráttu á skákborðinu.
Þegar bókin kemur út stofnast boðgreiðslukrafa í heimbanka fyrir andvirði hennar og kaupendur fá hana heimsenda.
















