Helgi kampakátur í sjónvarpviðtal við RÚV skömmu eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í húsi. Mynd: BÍvarK.

Íslenska liðið á opnum flokki á Ólympíuskákmótinu í Batumi í Georgíu er eingöngu skipað stórmeisturum og mun það vera í fyrsta síðan árið 1996 sem slíkt gerist. Liðið er afar reynslumikið en engin þó reynslumeiri en Hannes Hlífar Stefánsson sem teflir á sínu fjórtánda Ólympíuskákmóti í röð.

Íslandsmeistarinn, Helgi Áss Grétarsson, teflir á sínu fyrsta Ólympíuskákmóti í 16 ár og Norðurlandameistarinn Jóhann Hjartarson teflir rétt eins og hann gerði í Bakú 2016. Auk þeirra eru í liðinu Héðinn Steingrímsson og Hjörvar Steinn Grétarsson sem skipa tvö efstu sæti íslenska skákstigalistans.

Liðsstjóri og landsliðsþjálfari er Helgi Ólafsson, sem reyndar er reynslumestur allra á ólympíuskákmótun en hann hefur hefur teflt á 16 ólympíuskákmótum og er nú í liðstjórahlutverkinu í þriðja skipti. Hans nítjánda ólympíuskákmót sem keppandi eða liðsstjóri!

Helgi segir svo í bréfi til stjórnar SÍ og landsliðsnefndar:

Vil byrja á því að þakka stjórn SÍ þann heiður að velja mig sem liðsstjóra og þjálfara íslenska ólympíuliðsins sem tekur þátt í opna flokki Ólympíumótsins í Batumi í Georgíu í september nk. Mér er jafnframt falið að velja þá einstaklinga sem tefla í liðinu. Þeir eru:

  1. GM Héðinn Steingrímsson (2583) – hefur teflt á þremur ólympíumótum
  2. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2557) – hefur teflt á fjórum ólympíumótum
  3. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2541) – hefur teflt á þrettán ólympíumótum
  4. GM Jóhann Hjartarson (2523) – hefur teflt á ellefu ólympíumótum
  5. GM Helgi Áss Grétarsson (2460) – hefur teflt á fjórum ólympíumótum

Borðaröð verður tilkynnt síðar.

Fyrir tveimur dögum síðan var kennalandsliliðið kynnt til sögunnar.

- Auglýsing -