Það er óhætt að segja að Íslandsmótið í skák hafi hafist með miklum látum. Skákir dagsins voru æsispennandi og boðið var upp á glæsileiki, afleiki, fórnir og miklar sviptingar!
Skák umferðarinnar var án nokkurs vafa skák Braga Þorfinnssonar gegn stigahæsta keppanda mótsins, Hjörvari Steini Grétarssyni. Bragi leitaði í smiðju Magnus Carlsen í byrjuinni og fórnaði svo manni og úr varð mjög skemmtileg barátta. Kíkjum fyrst á gang mála í þeirri röð sem skákirnar kláruðust.
Björn Þorfinnsson – Margeir Pétursson

Þátttaka Margeirs Péturssonar er mikið gleðiefni. Hann tefldi síðast fyrir 24 árum á Íslandsmóti og þá einnig í Garðabæ! Margeir hefur teflt örlítið meira síðustu ár og tefldi t.d. með TR á Evrópumóti Taflfélaga í fyrra.
Björn Þorfinnsson byrjaði skákina ekki vel, tefldi Torre-árásina en niðurstaðan varð eiginlega afbrigði af London-systeminu en tempói undir. Tólfti leikur hvíts 12.e4? var svo slakur hér:
Margeir drap á d4 12…cxd4 13.Rxd4
Hér lék Margeir þó of öruggum leik með 13…a6? og missti af 13…Bxg3 14.hxg3 dxe4 og svartur stendur mjög vel með peði yfir þar sem 15.Rxe4 Rxe4 16.Bxe4 De5 vinnur mann hjá svörtum.
Björn slapp því með skrekkinn og skákin varð nokkuð þurr, mikil uppskipti urðu og úr varð þurrt hróksendatafl sem varð svo að peðsendatafli
Hér hefði Margeir mögulega staðið örlítið betur eftir 36…e5 þó jafntefli væri líklegasta niðurstaðan. Margeir er hér hinsvegar búinn að leika skelfilega af sér með hinum eðlilega 36…Kd6?? og varð að geafst upp eftir 37.f4!! gxf4 38.h4 þar sem svartur ræður ekki við frípeðin á h- og c-línunni og nær ekki mótspili í tæka tíð. Sannkallað „djöflatrikk“ hjá Bjössa sem getur vel við unað!

Guðmundur Kjartansson – Vignir Vatnar Stefánsson

Guðmundur tefldi Mikenas árásina gegn Vigni og tefldi af krafti þegar hann fórnaði peði hér
15.c5!? var athyglisverður leikur. Vignir tók á c5 þrisvar eftir 15…bxc5 16.dxc5 Bxc5 17.Bxc5 Dxc5. Guðmundur veðjaði á að betri liðsskipan og vandræði svarts til að klára liðsskipan myndu vega meira en peðstapið.
Guðmundur reyndi að halda pressunni uppi en líklegast var það ekki nóg.
Hvítur hefur fórnað manni en fengið hrókana á sjöundu reitaröð. Ekkert mát virðist vera í spilunum og því hefur flestir sætt sig á skiptan hlut með hvítu hér. Gummi hélt áfram á þrjóskunni og tókst einhvern veginn að trikka Vigni og plata hann í mátnet þar sem hann náði liðinu til baka með vöxtum!

Dagur Ragnarsson – Þröstur Þórhallsson

Þröstur kom mjög á óvart í byrjuninni þegar hann tefldi Benoni vörn sem hann hefur ekki oft beitt. Þröstur hefur mest verið í drottningarbragði, mótteknu og höfnuðu og eins Semi-Slavanum. Dagur virtist fá mjög fína stöðu úr hinu svokallaða „Modern Main Line“ línu sem hefur gefið mjög vel gegn Benoni.
Mikil spenna var lengi í stöðunni en Dagur lét svo loks til skarar skríða í sameiginlegu tímahraki.
Eftir miklar tilfæslur hjá báðum kom nú 36.e5! nokkrar sviptingar fylgdu í kjölfarið og svo fékk Dagur færi á „Fréttablaðsleik“
Keppendur voru nýbúnir að ná tímamörkunu hér og því hafði Dagur nægan tíma til að ganga úr skugga um að 41.Dxd4+!! gengur fullkomlega upp og tryggir hvítum vinninginn vegna samblöndu máthótana og liðsvinninga.

Gauti Páll Jónsson – Helgi Áss Grétarsson

Byrjanavalið í þessari skák hefur ekki komið neinum á óvart. Helgi hefur haldið tryggð við sín „Modern-kerfi“ þar sem svartur skásetur biskup sinn snemma með …g6.
Gauti valdi uppstillingu sem Tiger Hillarp-Person kallaði „Mad-Dog“ í bók sinni um Modern kerfið. Ágætis nafn á byrjun í frumraun Gauta Páls í landsliðsflokki!
Skákin var lengi í jafnvægi, Helgi náði að vinna biskupaparið en það virtist ekki líklegt til að skipta máli, Gauti hélt vel í horfinu og staðan í dýnamísku jafnvægi. Helgi náði þá með mikilli seiglu að véla peð af Gauta og allt í einu virtist hann standa til vinnings með peði yfir auk biskupaparsins og veikleika í hvítu stöðunni.
Gauti gerði þá hið eins rétta í stöðunni, henti öllu slagkrafti í mótspil. Það gekk framar vonum og kóngur Helga kominn í mátnet…
Gauti lék hér 40.Hg8 sem var síðasti leikur fyrir tímamörkin. Þessi leikur tryggir jafntefli þar sem hvítur verður að þráleika. Hefði tímamörkunum verið náð hefði Gauti ef til vill fundið hinn magnaða leik 40.Rb4!? Það sem þessi leikur gerir er að reyna að ginna svarta riddarann í burt því þá missir svartur þráskákina og hvítur getur leikið Hg8 eftir það. Svartur gerir best að leika 40..Rc3 en hvítur stendur mun betur og mögulega til vinnings!
Engu að síður frábær úrslit hjá Gauta í hans frumraun í landsliðsflokki. Oft er hætt við að stigahærri skákmennirnir vilji „lumbra“ aðeins á þeim stigalægsta í flokknum en Gauti hefur strax sent skýr skilaboð um slíkt verði ekki í boði!

Bragi Þorfinnsson – Hjörvar Steinn Grétarsson

Bragi virtist mæta vel undirbúinn til leiks og leitaði í smiðju Magnúsar Carlsen.
Þessi uppstilling gegn Sikileyjarvörninni er tiltölulega ný af nálinni og Carlsen beitti henni í þekktri sigurskák gegn Radoslav Wojtaszek.
Bragi setti mikla pressu á Hjörvar með athyglisverðri mannsfórn í 15. leik
Hér lék Bragi 15.Rd5!? ….Hjörvar tók áskoruninni og tók manninn og úr varð mikil og spennandi barátta. Það sem var magnað við fórnina var sem að Bragi tefldi í raun bara stöðulega eftir fórnina þar sem bætur hans fólust ekki í mátsókn. Líklegast missti Bragi af gxh6 sem vænlegri leið í stað Bb2 en staðan eftir það varð mjög skemmtileg engu að síður.
Bragi virtist á einhverjum tímapunkti missa þráðinn og Hjörvar tefldi vörnina vel og virtist vera að ná yfirhöndinni og spennan mikil í kringum tímamörkin. Bragi lenti í óþægilegri vörn eftir tímamörkin en var þó aldrei í mikilli hættu. Hjörvar teygði sig of langt í tilraunum til að valda Braga vandræðum og gaf Braga á silfurfati drottningarendatafl sem hlýtur að vera unnið.
Bragi getur leikið hér 54.Kxa4 og drottningarendataflið er mjög vænlegt, líklega unnið. Hann lék hinsvegar 54.Df6+ sem er líklega í lagi og eftir 54…Ka7 55.De7+ Kb6 hefði 56.Dd8 líklega dugað til vinnings en Bragi líklegast örmagna af þreytu sá ekkert betra en að endurtaka stöðuna þrisvar og jafntefli varð niðurstaðan í hreint magnaðri skák!

Úrslit 1. umferðar

Staðan:

Útsending 1. umferðar:
https://www.twitch.tv/videos/718169363
- Heimasíða mótsins
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Bein lýsing í umsjón Ingvars Þór (hefst um kl. 16-16:30 alla daga)

















