Kæru skákmenn. Nú styttist svo sannarlega í stóru stundina, Íslandsmót íslenskra skákmanna (og skákáhugamanna) í golfi. Leikið verður bæði í punktakeppni og höggleik að sinni og að sjálfsögðu verður haldið skákmót að móti loknu. Nánara fyrirkomulag verður kynnt fyrir keppendum á sjálfum Hlíðarvelli þar sem Bjarki og Guðrún Brá lyftu titlum sínum fyrir ekki svo löngu síðan.
Nánari upplýsingar um skráningu og dagsetningu:
Sunnudagurinn 13 september. Mæting: 09:15
Vallargjald: 5700 kr. (Greiðist í skála fyrir hring – Meðlimir í GM þurfa ekki að greiða)
Verðlaunagjald: 1300 kr. (Sendi upplýsingar á keppendur þegar nær dregur).
Sendið á mig póst á netfangið taeknimadur@gmail.com Fram þarf að koma: – Fullt nafn keppanda/keppenda – Klúbbur – Golfbox númer keppanda (Ef einstaklingur er í klúbbi, annars senda Ekki í klúbbi) – Forgjöf – Hraðskákstig (Ef keppandi hyggst taka þátt í skákmóti)
Ég mun sjálfur raða í ráshópa.
Takmörkuð pláss í boði!
Skráningarfrestur golfmóts skákmanna er til klukkan 20:00 á mánudaginn.
Arnar Ingi Njarðarson
- Auglýsing -