Carlsen sposkur á svip gegn Tari. Mynd: Lennart Ootes/Norway Chess.

Magnús Carlsen (2863) vann landa sinn Aryan Tari (2633) í þriðju umferð Altibox Norway Chess – mótsins í gær. Heimsmeistarinn lagði mikið á stöðuna – og það gekk upp. Magnús er í þriðja sæti með 6 stig. Levon Aronian (2767) sýndi mikla endataflstækni þegar hann stýrði vinningum í hús gegn Jan-Krzysztof Duda (2757). Ungstirnið Alireza Firouzja (2728) lagði Fabiano Caruana (2828) að velli í bráðabana.

Aronian leikur lokaleiknum. Mynd: Lennart Ootes/Norway Chess

Nánar á Chess.com

Fjórða umferð fer fram í dag. Þá mætast: Carlsen–Caruana, Aronian–Firouzja, and Tari–Duda.

Mótstaflan

Umferðir hefjast kl. 15. Vladmir Kramnik og Judith Polgar eru með skákskýringar.

Fyrirkomulag mótsins

Í kappskákinni hafa keppendur klukkustundir á skákina og enginn viðbótartími fyrr en eftir 40 leiki en þá fá keppendur 10 sekúndur á hvern leik. Verði jafntefli verður tefldur bráðabani. Hvítur fær tíu mínútur gegn sjö mínútum svarts. Svörtum dugar jafntefli. Fyrir sigur í hefðbundinni skák eru gefin 3 stig. Fyrir sigur í bráðabana eru gefin 1,5 stig en 1 stig fyrir tap í bráðabana.

- Auglýsing -