Heimsmeistarinn, Magnus Carlsen (2842) sýndi snilldartilþrif í tvöföldu hróksendatafli þegar hann lagði Frakkann Maxime Vachier-Lagrave (2779) í 2. umferð ofurmótsins í Biel í gær. Fyrsti sigur Magnúsar á MVL í 3 ár og fyrsta skipti í 13 ár að hann vinni Frakkann með svörtu. Magnús hefur ekki byrjað jafnvel á lokuðu móti síðan í Shamkir 2014!
Skákin er skýrð á Chess.com.

Peter Svidler (2753) vann heimamanninn Nico Georgiadis (2526). Shakhriyar Mamedyarov (2801) og David Navara (2741) gerðu jafntefli.
Svidler og Mamedyarov eru í 2.-3. sæti með 1½ vinning. Þriðja umferð hefst kl. 12 í dag. Þá teflir heimsmeistarinn við Svidler.
- Auglýsing -


















