Sem fyrr munar aðeins einum vinningi á efsta og sjöunda sæti á Skákþingi Íslands í Kópavogi. Sjöunda umferð fer fram í dag og mæta efstu menn mótsins tveimur úr neðri helmingi mótsins.
Tveir innbyrðis slagir keppenda með 3½ vinning þar sem jafntefli dugar ekki mönnum til að halda sér í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn geta verið mjög áhugaverðir.
Viðureignir dagsins:
- Sigurbjörn Björnsson (1) – Jóhann Hjartarson (4½)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (4) Alexander Oliver Mai (½)
- Hannes Hlífar Stefánsson (3½) – Helgi Áss Grétarsson (3½)
- Guðmundur Kjartansson (3½) – Bragi Þorfinnsson (3½)
- Björn Þorfinnsson (2½) – Vignir Vatnar Stefánsson (3½)
Staðan
Skákvarpið
Vefútsending hefst kl. 15 og skákskýringar Ingvars Þórs Jóhannessonar á milli 16:00 og 16:30.
Umfjöllun Ingvars um skák dagsins í gær
Kópavogur, Arion banki, Brim og Teva styðja á myndarlegan hátt við mótshaldið.
Helstu tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (úrslit og staða)
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (heimasíða)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- Beinar útsendingar (Followchess)
- Beinar útsendingar (Chessbomb)
- Auglýsing -
















