Sem fyrr munar aðeins einum vinningi á efsta og sjöunda sæti á Skákþingi Íslands í Kópavogi. Sjöunda umferð fer fram í dag og mæta efstu menn mótsins tveimur úr neðri helmingi mótsins.

Tveir innbyrðis slagir keppenda með 3½ vinning þar sem jafntefli dugar ekki mönnum til að halda sér í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn geta verið mjög áhugaverðir.

Viðureignir dagsins:

  • Sigurbjörn Björnsson (1) – Jóhann Hjartarson (4½)
  • Hjörvar Steinn Grétarsson (4) Alexander Oliver Mai (½)
  • Hannes Hlífar Stefánsson (3½) – Helgi Áss Grétarsson (3½)
  • Guðmundur Kjartansson (3½) – Bragi Þorfinnsson (3½)
  • Björn Þorfinnsson (2½) – Vignir Vatnar Stefánsson (3½)

Staðan

Skákvarpið

Vefútsending hefst kl. 15 og skákskýringar Ingvars Þórs Jóhannessonar á milli 16:00 og 16:30.

Umfjöllun Ingvars um skák dagsins í gær

Kópavogur, Arion banki, Brim og Teva styðja á myndarlegan hátt við mótshaldið.

Helstu tenglar

- Auglýsing -