Jóhann og Indverjinn með langa og flókna nafið: Mynd: Heimasíða mótsins

Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2523), vann sína fjórðu skák í röð á Xtracon-mótinu í gær. Hann vann indverska alþjóðlega meistaranum Kauanduur Srihari Raghunandan (2417) í gær í fjörugri skák.

Jóhann lék 27. Rg5! í þessari stöðu.

Skák Jóhanns í heild sinni má finna neðst í fréttinni.

Jóhann er einn tíu keppenda sem hafa fullt hús. Andstæðingurinn í dag verður sjálfur Evrópumeistarinn, Króatinn Ivan Saric (2689).

Í gær tefldi Jóhann klukkufjöltefli á skákstaðnum. Ekki er ritstjóra kunnugt um hvernig það gekk hjá Jóhanni.

Jóhann teflir fjöltefli. Mynd; Heimasíða mótsins

Tveir aðrir Íslendingar verða í beinni í dag. Hilmir Freyr Heimisson (2241) teflir við skákmeistara Danmerkur, alþjóðlega meistarann, Bjorn Moller Oshsner (2469) og Örn Leó Jóhannsson (2196) sem teflir við sænska stórmeistarann Ralf Akesson (2397).  Þeir hafa báðir 3 vinninga.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2536) tapaði fyrir Rússanum Andrey Tsvekov (2259) í 4. umferð á opna tékkneska mótinu í Pardubice. Hannes hefur 1½ vinning.

FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2277) gerði jafntefli við Grikkjann Konstantinos Tiantos (2078) í 7. umferð á álþjóðlegs móts á Krít og hefur 4½ vinning.

Skákin í heild sinni:

- Auglýsing -