Íslandsvinurinn mikli, litháíski stórmeistarinn, Aloyzas Kveinys, nýlega orðinn 56 ára. er látinn. Kveynis var mikill Íslandsvinur og tók t.d. þátt í GAMMA Reykjavíkurskákmótinu í ár ,Norðurljósamótinu í fyrra og á EM landsliða í höllinni 2015.. Ritstjóri minnist Kveinys með miklum hlýhug. Það var alltaf gaman að hitta Litháan brosmilda.

Leyfum Birni Þorfinnssyn að eiga orðið:
Það er fallinn frá mikill vinur íslenskra skákmanna og líklega sá erlendi skákmaður sem hefur teflt flestar skákir í íslensku deildakeppninni. Nú síðast fyrir Víkingaklúbbinn þar sem hann stóð sig frábærlega. Það var ekki til glaðlegri eða vinalegri atvinnumaður í skák en Kveinys. Ég hef líklega teflt á um 10-12 mótum á erlendri grundu þar sem hann hefur verið viðstaddur auk allra mótanna hérlendis. Ég átti fáar ánægjustundir með honum við skákborðið enda vann hann mig alltaf fyrir utan eitt stutt jafntefli sem hann gaf mér, aðallega af því að hann vorkenndi mér. Ég átti þó mun fleiri ánægjustundir með Aloyzas við barborðið. Hann sýndi mér alltaf mikið vinarþel og var fús til þess að veita ráð. Hvíl í friði kæri vinur, þín verður sárt saknað.
Stórmeistari kvenna og jafnframt fjármálaráðherra Lettalands, Dana Reizniece-Ozola, segir svo á Facebook:

Að því loknu birtir Dana þetta myndband.
Megi minning þessa mikla Íslandsvinar lifa.
















