Nú er ljóst hverjir mætast í úrslitum Heimsbikarmótsins. Áður hafði Sergey Karjakin tryggt sig í úrslitin með sigri á Vladimir Fedoseev í klassísku skákunum. Í gær, þriðjudag, þurftu Magnus Carlsen og Jan-Krzystof Duda að tefla til þrautar í atskákum og hraðskákum ef á þyrfti að halda.
Fyrri skákinni lyktaði með jafntefli í tiltölulega tíðindalítilli skák. Duda náði reyndar að vinna peð undir lok skákarinnar en Carlsen var aldrei í taphættu og jafntefli varð niðurstaðan eftir þráleik.
Duda hafði betur í seinni bráðabanaskákinni og vann með svörtu mönnunum í skemmtilegri skák.
Skákin skýrð:
Viðtal við Duda:
Eins og áður sagði var Karjakin komin í úrslit eftir sigur í klassísku skákunum, sigurskák hans er hér að neðan:
Keppni heldur áfram í dag, miðvikudag þar sem teflt verður um titilinn auk þess sem Magnus og Fedoseev tefla um þriðja sætið.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)

















