Borgarskákmótið fer fram á morgun þriðjudaginn 17. ágúst, og hefst það kl. 14:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur Taflfélag Reykjavíkur að mótinu.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.

Þetta er í 36. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Vignir Vatnar Stefánsson, sem þá tefldi fyrir Húsasmiðjuna.

Verðlaun:

1.sæti 30.000 kr.

2.sæti 20.000 kr.

3.sæti 10.000 kr.

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur 

Mótið er hluti af Sumarmótaröð Reykjavíkur 2021.

Stigaútreikningur í mótinu:

  1. Bucholz -1
  2. Bucholz
  3. Sonneborn-Berger
  4. Innbyrðis úrslit

Í sumarmótaröðinni er keppt um 200.000 króna verðlaunasjóð. Stigakeppni sumarmótaraðarinnar virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Stigakeppnir  með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Þrjú bestu mót hvers þáttakanda gilda. Hin mótin í sumarmótaröðinni eru Mjóddarmótið, Viðeyjarmótið og Borgarskákmótið.

Staða efstu manna í sumarmótaröðinni þegar aðeins Borgarskákmótið er eftir:

  1. Davíð Kjartansson 36 stig (Mjódd, Viðey, Árbær)
  2. Arnar Erwin Gunnarsson 22 stig (Mjódd, Viðey, Árbær)
  3. Ingvar Þór Jóhannesson 16 stig (Viðey, Árbær)
  4. Guðmundur Kjartansson 12 stig (Mjódd, Árbær)
  5. Vignir Vatnar Stefánsson 12 stig (Mjódd, Viðey)
  6. Helgi Áss Grétarsson 11 stig (Mjódd, Árbær)
  7. Tómas Björnsson 11 stig (Mjódd, Viðey, Árbær)
  8. Guðni Stefán Pétursson 10 stig (Mjódd, Árbær)
- Auglýsing -