Róbert Lagerman hefur heldur betur staðið fyrir sínu á sjötta borð SSON. Mynd: Skák.is/Gerd Densig

Það gekk vel hjá íslensku sveitunum í 5. umferð EM taflfélaga sem fram fór í gær í Struga í Makedóníu. Allar unnu þær. Sérstaklega var sigur SSON magnaður en þeir lögðu að velli næstu stigahæstu sveitina. SSON er í 6. sæti með 8 stig, TR í 16. sæti með 6 stig og Víkingaklúbburinn er í 28. sæti með 4 stig. Bæði SSON og TR verða í beinni í dag.

SSON vann frábæran sigur á rússnesku sveitinni KPRF, sem er sveit rússneska kommúnistaflokksins. Anton Demschenko og Semon Lomasov unnu landa sína. Hetja liðsins var hins vegar Róbert Lagerman sem hélt jafntefli eftir magnaða baráttu á sjötta borði og trygði sigur Selfyssinga, 3½-2½, og um leið sigur á Kommúnistunum!

 

Guðmundur Kjartansson vann í gær. Mynd: Skák.is/Gerd Densing.

Taflfélag Reykjavíkur vann góðan 3½-2½ sigur á Lunds ASK. Sigur vannst á þremur efstu borðunum en Guðmundur Kjartansson, Oleksandr Sulypa og Margeir Pétursson unnu allir. Margeir hefur unnið 4 skákir í röð.

 

Sigurður Ingason vann mikilvægan sigur í gær. Mynd: Heimasíða mótsins.

Víkingaklúbburinn vann sannfærandi sigur á danska klúbbnum Nordkalotten. Tapani Sammalvuo, lánsmaðurinn Símon Þórhallsson og Sigurður Ingason unnu sínar skákir.

Sjötta og næstsíðasta umferð hefst kl. 13 í dag. SSON og TR verða í beinni. SSON mætir sterkri danskri sveit, Team Xtracon þar sem Henrik Danielsen er meðal með liðsmanna. Henrik hvílir hins vegar í dag.

 

TR mætir einnig sterkri sveit og eru töluvert stigalægri á öllum borðum. Hinni ísraelsku Beer Sheva. Spurning hvort að bjórtegundin Sheva sé helsti styrktaraðili sveitarinnar?

Víkingar tefla við Dardania frá Kósóvó.

- Auglýsing -