Hjörvar er efstur á Haustmóti TR.

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2597) og alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2383) héldu áfram á sigurbraut í sjöttu umferð Haustmóts TR í gær. Hjörvar vann alþjóðlega meistarann Sævar Bjarnason (2048) en Vignir lagði Dag Ragnarsson (2376) að velli. Hjörvar hefur fullt hús en Vignir hefur hálfum vinningi minna.

Mikið bil er í næstu keppendur Dagur, Jón Árni Halldórsson (2103) og Lenka Ptácníková (2127) koma næst með 3 vinninga. Lenka á þó frestaða skák til góða.

Sjöunda umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars Hjörvar-Lenka og Vignir-Jón Árni.

Opinn flokkur

Jóhann H. Ragnarsson (1912) er efstur 5½ vinning eftir að hafa lagt Arnar Milutin Heiðarsson (1916) að velli. Arnar, Kristján Dagur Jónsson (1785) og Benedikt Þórisson (1636) eru í 2.-4. sæti með 4½ vinning.

Mótið á Chess-Results.

Heimasíða TR.

- Auglýsing -