Aðeins 3½ vinningur af 19 mögulegum kom í hús í 3. umferð EM ungmenna í netskák sem fram fór í gær. Sigurður Páll Guðnýjarson (u10), Markús Orri Jóhannsson (u12) og Gunnar Erik Guðmundsson (u14) unnu sínar skákir. Benedikt Briem (u16) gerði jafntefli.
Benedikt og Gunnar Erik eru efstir íslensku krakkanna með 2 vinninga.
Úrslit 3. umferðar

Fjórða umferð fer fram í dag og hefst kl. 14.
Tefld er kappskák og er mótið reiknað til skákstiga. Í fyrsta skipti þar sem Íslendingar tefla netskák sem reiknuð er til alþjóðlegra skákstiga.
Ýmsar leiðir eru að til að fylgjast með mótinu. Í síma er afar þægilegt að nota appið Followchess.
- Auglýsing -

















