Íslensku ungmenninn að tafli í 2. umferð í morgun. Mynd: IÞJ

Áttunda og næstsíðasta umferð EM ungmenna í netskák fór fram í gær. Í hús kom 6½ vinningur. Jósef Omarsson (u10), Mikael Bjarki Heiðarsson (u12), Guðrún Fanney Briem (u12) og Iðunn Helgadóttir (u14) unnu í gær. Sigurður Páll Guðnýjarson (u10), Ingvar Wu Skarphéðinsson (u14), Adam Omarsson (u14), Benedikt Briem (u16) og Alexander Oliver Mai (u18) gerðu jafntefli.

Matthías Björgvin Kjartansson (u12) og Guðrún Fanney, sem hefur unnið þrjár skákir í röð eru efst íslensku keppendanna með 4 vinninga. Sigurður Páll, Gunnar Erik Guðmundsson (u14), Benedikt og Alexander Oliver hafa 3½ vinning.

Níunda og síðasta umferð hefst í dag kl. 14.

Úrslit 8. umferðar

 

Tefld er kappskák og er mótið reiknað til skákstiga. Í fyrsta skipti þar sem Íslendingar tefla netskák sem reiknuð er til alþjóðlegra skákstiga.

Ýmsar leiðir eru að til að fylgjast með mótinu. Í síma er afar þægilegt að nota appið Followchess.

- Auglýsing -