Frá setningu mótsins.

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) mætir úkraínska stórmeistaranum Andrei Volokitin (2652) í fyrstu umferð FIDE Grand Swiss – mótinu sem hefst í Riga í Lettlandi á morgun. Hjörvar stjórnar hvítu mönnunum. Umferðin á morgun hefst kl. 11.

Það ríkir afar slæmt ástand í Lettlandi vegna heimsfaraldur Covid. Útgöngubann er í gildi frá kl. 20 á kvöldin til kl. 6 á morgnana. Skákmennirnir eru í búblu, búa allir á sama hóteli sem hýsir enga aðra gesti. Þeir mega t.d. ekki fara í verslanir né notfæra sér almenningssamgöngur. Allir veitingastaðir eru lokaðir. Það jákvæða er að skákmennirnir geta einbeitt sér að skák án truflana!

108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

Fabiano Caruana (2800) er stigahæstur keppenda. Alls hafa 13 keppendur 2700 skákstig eða meira.

Skáksamband Íslands er FIDE  og mótshöldurum í Lettlandi afar þakklátt fyrir að hafa boðið Hjörvari til leiks með skömmum fyrirvara. Aðstoðarmaður Hjörvars á mótinu verður Guðmundur Kjartansson.

Skák.is mun að sjálfsögðu fylgjast vel með mótinu.

- Auglýsing -