Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) mætir úkraínska stórmeistaranum Andrei Volokitin (2652) í fyrstu umferð FIDE Grand Swiss – mótinu sem hefst í Riga í Lettlandi á morgun. Hjörvar stjórnar hvítu mönnunum. Umferðin á morgun hefst kl. 11.
The 2021 FIDE https://t.co/H5lI2q7beO Grand Swiss and Women’s Grand Swiss has officially opened in Riga.
The first round is tomorrow at 14:00 local time (13:00 CET, 7:00 ET), don’t miss the live broadcast!https://t.co/5A6ntTU9Dp #GrandSwiss2021 pic.twitter.com/5oHnGAcA89
— International Chess Federation (@FIDE_chess) October 26, 2021
Það ríkir afar slæmt ástand í Lettlandi vegna heimsfaraldur Covid. Útgöngubann er í gildi frá kl. 20 á kvöldin til kl. 6 á morgnana. Skákmennirnir eru í búblu, búa allir á sama hóteli sem hýsir enga aðra gesti. Þeir mega t.d. ekki fara í verslanir né notfæra sér almenningssamgöngur. Allir veitingastaðir eru lokaðir. Það jákvæða er að skákmennirnir geta einbeitt sér að skák án truflana!
108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.
Fabiano Caruana (2800) er stigahæstur keppenda. Alls hafa 13 keppendur 2700 skákstig eða meira.

Skáksamband Íslands er FIDE og mótshöldurum í Lettlandi afar þakklátt fyrir að hafa boðið Hjörvari til leiks með skömmum fyrirvara. Aðstoðarmaður Hjörvars á mótinu verður Guðmundur Kjartansson.
Skák.is mun að sjálfsögðu fylgjast vel með mótinu.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)
















