Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson stóð upp sem sigurvegari á Skákþingi Garðabæjar. Davíð hlaut 7 vinninga úr 7 skákum, fullt hús.

Tefldar voru 4 atskákir á fimmtudeginum og síðan þrír dagar með einni kappskák.

Davíð lagði Jóhann Ragnarson í lokaumferðinni og á meðann vann Ögmundur Kristinsson sína skák og stökk því upp í annað sætið með 5,5 vinning. Jóhann Ragnarsson og nafni hans Jóhann Arnar Finnsson komu næstir með 5 vinninga.

Ögmundur Kristinsson er því Skákmeistari Garðabæjar 2021.

Skákir lokaumferðarinnar:

Mótið á Chess-results

- Auglýsing -