Meistaramót Stofunnar 2018

    0
    1176
    Hvenær:
    15. ágúst, 2018 @ 20:00 – 23:00
    2018-08-15T20:00:00+00:00
    2018-08-15T23:00:00+00:00
    Hvar:
    Stofan Café
    Vesturgötu 3, 101 Reykjavík
    Iceland
    Meistaramót Stofunnar 2018

    Hraðskák

    Lýsing: Stofan, hið magnaða skákkaffihús við Vesturgötu 3, mun í samstarfi við Vinaskákfélagið halda hraðskákmót næstkomandi miðvikudag, 15. ágúst kl. 20:00.

    Tefldar verða níu umferðir með þriggja mínútna umhugsunartíma þar sem tvær sekúndur bætast við klukkuna eftir hvern leik. Umsjón mótsins verður í höndum Elvars Arnar Hjaltasonar, Héðinn Briem verður honum til aðstoðar.

    Ekkert kostar að taka þátt en margs konar verðlaun verða í boði. Þar má nefna peningaverðlaun, gjafabréf á Stofuna og aðra staði auk þess sem medalíur verða veittar fyrir efstu þrjú sætin ásamt eignarbikar til sigurvegarans. Sérstök útdráttarverðlaun verða í lok móts sem allir keppendur munu eiga möguleika á að hreppa.

    Fyrstu verðlaun: 5.000 kr. peningaverðlaun.
    Önnur verðlaun: 3000 kr. gjafabréf sem gildir á Stofunni.
    Þriðju verðlaun: 2000 kr. gjafabréf sem gildir á Stofunni.

    Mótinu mun væntanlega ljúka um ellefuleytið eða þar um bil (kl. 23:00).

    Hægt er að skrá sig í skráningarforminu hér að neðan en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum.

    https://goo.gl/forms/OoExVZvawTcleE2i1

    Mótið verður reiknað til hraðskákstiga FIDE.

    Skráningarform: https://goo.gl/forms/OoExVZvawTcleE2i1

    Vefsíða: http://chess-results.com/tnr370631.aspx?lan=1

    Netfang: elvareagle9@gmail.com

    - Auglýsing -