Jafntefli varð í fyrstu einvígisskák áskorandans Jans Nepomniachtchi og Magnúsar Carlsen í heimsmeistaraeinvígi þeirra sem hófst í Duabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Eftir byrjunina fékk Nepo, eins og hann er jafnan kallaður, sem hafði hvítt heldur lakari stöðu ef eitthvað var gegn vel undirbúnum andstæðingi sínum. Þetta er fjórða titilvörn norska heimsmeistarans en hann vann titilinn fyrir átta árum og er talinn sigurstranglegri þó að Nepo sé yfir í innbyrðis viðureignum þeirra. Leikreglur hafa tekið nokkrum breytingum frá síðustu HM-einvígjum; skákum hefur fjölgað úr 12 í 14 og tímamörk eru önnur en keppendur fá 2 klst. hvor til að ljúka 40 leikjum, síðan 1 klst. á næstu 20 leiki og eftir það 15 mínútur til loka skákarinnar en við 61. leik bætast við 30 sekúndur á hvern leik. Ljóst er að baráttan mun reyna mjög á úthald keppenda því hver skák getur staðið í 7 klukkustundir eða meira og undirbúningur þeirra hefur miðast við að vera í sem bestu líkamlegu formi.
Að sumu leyti teflir Nepo, fulltrúi mesta stórveldis skáksögunnar, við niðurlægjandi aðstæður. Rússneska skáksambandið heyrir undir íþróttamálaráðuneyti Rússlands en fulltrúar þjóðarinnar geta ekki keppt undir fána Rússlands á stórviðburðum á borð við Ólympíuleika vegna niðurstöðu WADA, Alþjóða-lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, frá árinu 2019 sem úrskurðaði um skipulagt lyfjamisferli rússneskra íþróttamanna. Nepomniactchi verður því að tefla undir skammstöfun rússneska skáksambandsins, CFR.
Ef marka má skákina í gær þá ætlar Magnús ekki að mæta kóngspeðsbyrjunum með sikileyjarvörn eins og hann gerði síðast þegar hann tefldi um titilinn. Hann fórnaði peði í byrjuninni, jafnaði taflið án mikilla vandkvæða og virtist eiga heldur betri möguleika í miðtaflinu.
HM – einvígi í Dubai 2021; 1. skák:
Jan Nepomniactchi – Magnús Carlsen
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 O-O 8. h3 Ra5!?
Peðsfórn sem þarf ekki að koma svo mjög á óvart. Þó svo að leikurinn sé ekki alveg nýr af nálinni hefur hann ekki gefist vel.
9. Rxe5 Rxb3 10. axb3 Bb7 11. d3 d5 12. exd5 Dxd5 13. Df3 Bd6
Svartur hefur biskupaparið og lipurt spil fyrir peðið.
14. Kf1 Hfb8 15. Dxd5 Rxd5 16. Bd2 c5 17. Rf3 Hd8 18. Rc3 Rb4 19. Hec1 Hac8 20. Re2 Rc6 21. Be3 Re7 22. Bf4
Leitar eftir uppskiptum en skarpara var 22. Rg3 sem hindrar – Rf5.
22. … Bxf3 23. gxf3 Bxf4 24. Rxf4 Hc6 25. He1 Rf5 26. c3 Rh4 27. He3 Kf8 28. Rg2 Rf5 29. He5 g6 30. Re1
Judit Polgar gagnrýndi þennan leik á Chess24.com og taldi greinilega betra að valda d3-peðið með 30. Ke2. En sennilega hefði það ekki breytt miklu.
30. … Rg7 31. He4 f5 32. He3 Re6 33. Rg2 b4!
34. Ke2 Hb8 35. Kd2 bxc3 36. bxc3 Hxb3 37. Kc2 Hb7 38. h4
38. … Kf7
Svartur er búinn að ná peðinu til baka en hvíti riddarinn er á leiðinni til c4. Hér mátti reyna 38. … a5! með hugmyndinni 39. Hxa5?? Rd4+! og vinnur, t.d. 40. Kd1 Hb1+ 41. Kd2 Hcb6 42. cxd4 cxd4! sem hótar hróknum og máti á b2. En hvítur þarf ekki að taka peðið og getur varist með 39. He2.
39. Hee1 Kf6 40. Re3 Hd7 41. Rc4 He7 42. Re5 Hd6 43. Rc4 Hc6 44. Re5 Hd6 45. Rc4
– og hér sömdu keppendur um jafntefli.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 27. nóvember 2021.
















