Næsti heimsmeistari? Nepo er til alls líklegur í HM-einvíginu í Dúbaí.

Allt er í járnum í einvígi norska heimsmeistarans Magnúsar Carlsens og áskorandans, Rússans Jans Nepomniactchis, sem fram fer í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fimmtu einvígisskák þeirra lauk með jafntefli í gær eftir 43 leiki. Einvígið fer af stað með sama hætti og tvö síðustu einvígi Magnúsar þegar hann varði titilinn eftir fjórar skákir með styttri umhugsunartíma. Nepo, eins og hann er kallaður, fékk betra tafl í gær en missti af sterkum leik í miðtaflinu og eftir það átti Magnús ekki í erfiðleikum með að halda jafnvægi. Skákin gekk þannig fyrir sig:

HM einvígi í Dúbaí 2021; 5. einvígisskák.

Jan Nepomniachtchi – Magnús Carlsen

Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. a4 Hb8

Carlsen lék 8. … Bb7 í 3. skákinni.

9. axb5 axb5 10. h3 d6 11. c3 b4 12. d3 bxc3 13. bxc3 d5 14. Rbd2 dxe4 15. dxe4 Bd6 16. Dc2 h6 17. Rf1 Re7?!

Ónákvæmur leikur. Eftir 17. … Bd7 eða 17. … De8 er staðan í jafnvægi.

18. Rg3 Rg6 19. Be3 De8

20. Hed1?!

Almennt var talið að Nepo hefði misst af góðu tækifæri með 20. c4! Svartur á úr vöndu að ráða vegna hótunarinnar 21. c5. „Vélarnar“ telja 21. … De6 eða 21. … Bb4 best.

20. … Be6 21. Ba4 Bd7 22. Rd2 Bxa4 23. Dxa4

23. Hxa4 hefði mátt svara með 23. … Hb2! o.sfrv.

23. … Dxa4 24. Hxa4 Ha8 25. Hda1 Hxa4 26. Hxa4 Hb8 27. Ha6 Re8

Setur upp óbrjótandi varnargirðingu.

28. Kf1 Rf8 29. Rf5 Re6 30. Rc4 Hd8 31. f3 f6 32. g4 Kf7 33. h4 Bf8 34. Ke2 Rd6 35. Rcxd6 Bxd6 36. h5 Bf8 37. Ha5 Ke8 38. Hd5 Ha8 39. Hd1 Ha2 40. Hd2 Ha1 41. Hd1 Ha2 42. Hd2 Ha1 43. Hd1

– og hér sömdu keppendur um jafntefli.

Einvígið í Dúbaí var upphaflega sett á dagskrá í ár sem leið en allur aðdragandi þess, þ.e.a.s. áskorendakeppnin, frestaðist um ár vegna Covid-19.

Baráttuna um heimsmeistaratitilinn í skák má rekja til ársins 1886 er Austurríkismaðurinn Wilhelm Steinitz vann einvígi við Prússann Johannes Zukertort. Allar götur síðan hafa einvígi um heimsmeistaratitilinn haldið athygli heimsbyggðarinnar en einvígi Fischers og Spasskís í Reykjavík sumarið 1972 er án efa það frægasta. Á tímabilinu 1993-2006 voru tveir heimsmeistaratitlar í „umferð“ en sameining tókst árið 2006 er Vladimir Kramnik vann Venselin Topalov í sögufrægu einvígi í Elista í Kalmykíu.

Fyrsta einvígi Nepomniachtchis

Nepo hefur enga reynslu af vettvangi heimsmeistaraeinvígja en gjörþekkir sögu þeirra og hernaðaráætlun sigurvegaranna. Hann virðist hafa óbilandi sjálfstraust og kveðst ekki vitund hræddur við Magnús. Fyrir einvígið í Dúbaí höfðu þeir teflt 11 kappskákir; Nepo hafði unnið fjórum sinnum, sex skákum hefur lokið með jafntefli og Magnús unnið einu sinni.

Jan Nepomniachtchi er af gyðingaættum, var afburðanámsmaður og meðfram skákinni haslaði hann sér völl í vinsælum vídeó- og keppnisleik, DotA (Defence of the Ancients) sem gæti útlagst: Til varnar því ævaforna. Magnús á svipuð áhugamál, og fyrir nokkrum árum komst hann í efsta sæti meðal sjö milljóna þátttakenda í leik á netinu, Fantasy Premier League. Verðlaunafé í einvíginu losar tvær milljónir bandaríkjadala.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 2. desember 2021. 

- Auglýsing -