Áttunda skák heimsmeistaraeinvígisins hefst kl. 12:30. Magnús Carlsen (2855) stjórnar nú hvítu mönnunum. Lætur hann kné fylgja kviði? Mun hann tefla aftur 1. d4, sem dugði honum til sigurs í sjöttu skákinni, eða gefur hann Rússanum kost á því að tefla rússneska leikinni?
Það eru margar leiðir til fylgjast með einvíginu í beinni.
Útsendingar á heimasíðu mótsins eru í umsjón Viswanathan Anand og Anna Muzychuk auk Maurice Ashley.
Vert er einnig að benda á beinar útsendingar á Chess24 sem eru í umsjón Judit Polgar, Anish Giri og Tania Sadchev.

Tengill á útsendingar á Chess24
Chess.com er að sjálfsögðu einnig með beinar útsendingar. Þar ráða ríkjum Fabiano Caruana, Hou Yifan, Robert Hess og Danny Rensch.

Tengill á útsendingar á Chess.com
Chess24 er einnig aðrar beinar útsendingar sem eru mjög aðgengilegar og eru í umsjón David Howell, Jovanka Houska og Kaja Snare.

Tengill á útsendingar Howell, Houska og Snare
Svo eru það Peter Svidler og Vladimir Kramnik sem eru í uppáhaldi hjá mörgum!















