Alþjóðlega mótinu Elllobregat Open lauk í gær. Þrír íslenskir skákmenn tók þátt. Við sögðum síðasta frá mótinu eftir sex umferðir.
Helgi Áss Grétarsson (2476) fékk 2 vinninga í síðustu þremur umferðunum. Hann fékk 5½ vinning í umferðunum níu. Guðmundur Kjartansson (2443) hlaut einnig tvo vinninga. Hann endaði með 5 vinninga. Páll Agnar Þórarinsson (2175) hlaut 1½ vinning og endaði með 3½ vinning.
Lokstöðu mótsins má finna á Chess-Results.
Alls tóku 157 skákmenn frá 41 landi þátt í mótinu. Þar á meðal voru 36 stórmeistarar.
- Auglýsing -















