Skytturnar fjórar. Mynd af Facebook-síðu Helga Áss.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2513) endaði í 8.-20. sæti (12. sæti á stigum) á EM í atskák sem sem fram fór um helgina í Katowice í Póllandi. Hannes hlaut 8½ vinning í umferðunum ellefu. Prýðis frammistaða hjá Íslandsmeistaranum þrettánfalda!

Helgi Áss Grétarsson (2405) hlaut 8 vinninga, Guðmundur Kjartansson (2402) fékk 7½ vinning og Gauti Páll Jónsson (2024) endaði með 6½ vinning.

Reyndar hefur farið tvennum sögum af erindi Gauta til Póllands en hið sanna virðist þá hafa komið í ljós miðað við lokastöðu mótsins.

 Evrópumeistari varð rússneski stórmeistarinn Alexander Motylev (2703).

 Sjá Chess-Results

 

- Auglýsing -